þriðjudagur, maí 12, 2009

Evróvision yfirlit 2009

Þá tekur nördinn yfir hjá mér...búin að sitja og horfa á júró-þætti á netinu og sit nú og horfi á videóin fyrir kvöldið í kvöld ef ég skyldi missa af einhverju...er nebbla að fara út að borða!!! Rugluð tímasetning þegar svona mikilvæg sjónvarpsdagskrá er í gangi hahahaha

En hef komist að þessu:
-Er náttla algjör sökker fyrir þjóðlegum tónum svo er rosa skotin í Tékklandi og Armeníu, elska þegar er blandað saman gömlu og nýju...ÁFRAM TÉKKLAND
-Belarus skil ég ekki alveg eða Írland (veit þeir eru ekki í kvöld) þetta með að senda rokk og punk rokk lög með of góðum söngvurum...virkar ekki fyrir mig!! Svona lagað á að vera soldið gróft og out of key hehehe Þá er Makadonia aðeins skárri...allavega oggu boggu grófari og a.m.k. með skítugan lopaflóka á hausnum : D
-Svíþjóð skil ég bara ekki!!
-Andorra ætti maður nú að heppe áfram þar sem dönsk blómarós tekur að sér flutning...men nej, finnst þetta vera samansetning af 2 lögum sem passa ekki saman...sorry hvort sem þú ert dani eður ei nennum við þig ekki...
-Swiss er soldið stolið...held hreinlega frá einhverjum gömlum góðum 80's hit....new order...þarna kom það... en iss ég læt það sleppa framhjá...elska að þeir eru að reyna að vera hip og kúl. Strákarnir frá Bosníu Hers...eru líka bara krútt að vera hip og kúl...nota takta frá stjörnunum í hinum stóra heimi & videotýpugerð...en eru kannski að reyna að vera aðeins of kúl til að það passi við lagið!!! But then again ég veit ekkert hvað þeir syngja um...!!
-Svo verður nú auðvitað að vera eitt land sem hefur beran maga og dillandi rass til að draga athyglinga frá að lagið er ekki sérlega gott...þar höfum við Tyrkland
-Annað sem verður að vera með er lélegur óskiljanlegur texti...Romania syngur the Balkan girls they like to party like nobody like nobody...svo hhhmmm stelpurnar elska að djamma eins og enginn annar og líkar ekki við neinn eða er þetta bara óþarfa endurtekning á orðum!! (já ég get velt mér uppúr þessu öllu saman...endalaust hahahha)
-Ja, hérna hér...held bara að ég heppi líka fyrir Finnlandi í ár...gott og gilt 90' popp...kannski vegna þess að ég hef verið að heyra svolítið af nýja Prodigy disknum og þeir eru sko bara með kúl afturhvarf í þetta gamala : D
-Malta spilar sama gamla ballöðu spilinu og er ansi nálægt því að detta yfir í söngleikja lag...þeir hafa rétt náð að bjarga því fyrir horn annað en gamla UK þeir eiga örugglega eftir að semja söngleik í kringum lagið sitt...enga Andrew Loyd Webber sem skrifar lagið...meira helvítis vælið (veit líka að þeir eru ekki í kvöld)

Nokkur lög ná nú ekki einu sinni að vera með í umræðunni hér...meira vælið sumt af þessu...

En gleymum nú ekki gamla góða Íslandinu : D
-Þetta er svosem allt í lagi popplag...kannski aðeins of mikið drama þegar það skiptir yfir í viðlagið...úff maður fær bara illt í magann yfir örlögum greyjið litlu Jóhönnu...afsakið Yohanna...og eins og Jónsi hér um árið nær hún að túlka tilfinningar lagsins 100% með andlits- og líkamstjáningu að ógleymdum kjólaskiptum...allavega í videóinu : D hihihihi

Megi ykkur öllum ganga vel í kvöld POJ POJ

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ.
Ekki slæm hugmynd þetta að fara út að borða. Reyndar eru Stína og Hrönn í mat hjá mér seinna úrslitakvöldið. Ég skal taka svoleiðis mat með steik með til danó og elda hana þegar þú kemur til okkar Hjöddu. Þar er .......
gettu nú.
Kveðja úr firðinum fagra og frá hinni óðum hverfandi syss.

10:01 e.h.  
Blogger hme said...

Ég flissa eins og skólastelpa í hvert sinn sem ég heyri lagið með Sakis! Hann sjálfur reyndar gerir ekkert fyrir mig, það sem kveikir á flissinu og dillinu er hin klassíska eurovision hækkun í laginu! This is our night, fly! og hendinni er þrykkt upp í loftið, to the top bay-be og mjaðmadill, oh ég er farin til Grikklands að kaupa diskinn hans (hann er uppseldur á amazon...)!!!

10:31 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home