miðvikudagur, apríl 29, 2009

April 2009

Kl. er tíu að morgni...ég er banhungruð, búin að vera vakandi síðan klukkan sjö og það er verið að tala um svínainfluensu í sjónvarpinu...Held ég verði bara svangari við allt þetta svínatal!!!
....hhhmmm bannað að dæma mig...en var að borða gráðosta-mæjó-kjúklingasamloku í morgunmat!!! Tihihi lítur út fyrir að ég VERÐI að drífa mig í ræktina í dag : s

Já já, april er komin og farin:
-Soldið læknavesen í gangi og á ennþá eftir að fara í allavega eitt viðtal í viðbót!! OJ meira ruglið...málið er að mjaðmakúlan situr líklega of nálægt slíðrinu!!! Líður svoldið eins og einni áttræðri en iss við skulum ekki spá of mikið í það ; )
-Þetta skrítna er ennþá að þróast, bíðum rólega með að segja frá því...en allavega huggar maður með þetta : D

Annars er gleði og vor í lofti. Fyrsti sólbruninn, fylgt eftir af hreistri, um miðjan april...held þetta slái öll fyrri sólbrunamet.
Verður gott sumar með strandferðum og öl í garðinum....ykkur er öllum velkomið að kikka við og eyða degi hér og þar með mér : D

Knús og kossar...

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ég væri nú alveg til í að kíkja til þín :) Mig langar svo að bjóða Matthíasi Andra út til Danó og fara í alvöru dýragarð og svoleiðis (ekki það að það sé neitt leiðinlegt í húsdýragarðinum). Ef ég vinn í Lottó þá kíkjum við pottþétt við hjá þér ;)

kv. Sirrý frænka (sko frænkan sem á bara íbúð, ekki hús)

11:45 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Langar ekkert lítið sko :) Kannski þegar haustið kemur fæddist einhver hugmynd um það :) knus á þig sætust kv.Kle-ið

12:57 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er mjaðmakúlan hjá þér, hryggskekkja og mjaðmagrindarbeygla hjá mér, við erum alls ekki gamlar!! nei nei nei :)
Já og svo erum við enn í fæðingarumræðunni við Kle! ;)

5:33 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

@ÍbúðarHrænka...þú ert sko alltaf velkomin að kíkja til mín : D en svo þú vitir það er ég í Århus!!
@Klefna...húsmæðra-haustferð hljómar nú ekki svo dårligt hva' : D líst vel á...er ennþá að reyna að sjá fyrir mér að ég komi heim í sumar, haust, vetur!!! En bara koma koma sætust ; )

7:59 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Århus, Köben hvað sem er hljómar draumi líkast,
skítt með hvað danska krónan stendur illa gagnvart íslenska klinkinu:0)

svo er aldregi að vita nema fleiri íslendingar setjist að í Baunalandinu þegar það fer að hausta:0)

bestu kveðjur
St.hlíðarskvísan

9:42 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home