fimmtudagur, febrúar 19, 2009

2. mánuður 10 to go...

Jæja, best að koma sér að verki...

Síðan síðast hefur kannski ekki svo mikið gerst...en hér kemur það svona svo þið fáið smá innsýn í lífið og vitið að litla ég er enn á lífi ; )

-Búin að borða skötusel í danó...það var sko bara fínasta fínt, MóMó er svo margt til lista lagt : D
-Tók heila viku í að lesa, slappa af (sagt eins og ég geri e-ð annað þessa dagana hehehe) og ná áttum...virkaði vel þar til heilinn fór að starfa aftur!!!
-Svaf á hótelinu 1a nótt og aðrar 5 nætur var ég þar vakandi í móttökunni...
-Skellti mér 1x á fredagsbar, 1x í bíó og fór í VÖFFLUKAFFI allt þetta með arkitekgjéllunum fallegu...mæli ekki með He's just not that into you...fékk svaka bömmer yfir lífinu!!! en lagaði það með night on the town hehehehe
-Eyddi megninu af mánuðnum í baráttu við Spike jr. sem vill ekki hlaða nýja cs3 pakkanum inn og er orðinn ansi gamall og hægur...held að mac sé málið næst!!!
-Ljósmyndasýning með einni frá skólanum og sameiginlegt væl yfir ljótleika þess að við fáum ekki nemapláss fljúgandi inn um bréfalúguna...
-Fór á útgáftónleika kærasta einnar úr ark-skólanum...hann var bara helv. góður kallinn : D
-Náði eftir langan tíma að heyra í Gundi á skype, hringdi líka í ma & pa en skypedeitið okkar Everts var truflað af gömlum samkynhneigðum manni...!!
-Er ekki búin að vera dugguleg í ræktinni, vantar Karinu ofurþjálfara til að halda mér við efnið hehehe Hef samt mæt a.m.k. 1x í viku því annars þarf ég að borga.
-Eyddi síðustu aurunum í vel heppnaða, vel verðskuldaða og vel tímabæra klippingu

Nú síðustu daga mánaðarins ætla ég að nota til að vinna, fara til doksa, sunnudagssteik, út að hlaupa og halda mér langt í burtu frá freistingum...hhhmmm!!!

Hér fáið þið smá kíkk á nýju kjélluna : D

5 Comments:

Blogger Sirrý Jóns said...

...mikið ertu nú sæt og krúttleg, alveg eins og frænka þín (moi auðvitað ;)). Nemaplássið kemur þegar það kemur, þú veist hvernig þetta virkar.

Á maður sem sagt að horfa á He's just not that into you þegar maður á mjög góðan og sterkan andlegan dag? Því þó ég sé í sambandi er ég svo mikil mús og grátgjörn og fær um að láta alla skapaða hluti koma mér í ójafnvægi...

2:39 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þú veist að við erum bara destined to be together honey! Þú og ég elskan. Það heldur mér gangandi því ekki nota ég a night on the town ;) hehe annars fór ég nú á Nasa um daginn - eigum við að ræða það eitthvað!?
h

9:28 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

glæsileg að vanda!
Varðandi myndina, þá ætlaði ég að kíkja á hana, og reyna draga kallinn með, á maður að bíða eftir dvd inu svo tárin fái að streyma óáreitt...

koss knús og allur pakkinn!
Agnes

11:10 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Mikil óksöp stelpur mínar...það er bara eins og að lenda á rómó kvennaplánetu að lesa kommentin ykkar....
Til að byrja með tak tak TAK fyrir klippihrós : D
Svo...málið er EKKI að bíða eftir andlega sterkum dag eða að myndin komi út á DVD...málið er að hreinlega bara SLEPPA því að sjá myndina...kannski var ég bara ekki alveg að ná þessu...allavega gekk ég út og leið eins og lúser hahahhahhaha
Kv.nýklippti lúserinn ; )

10:59 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Tókstu ekki eftir því hvað ég sagði?! Ég fór á Nasa um daginn...!!!

10:41 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home