mánudagur, apríl 06, 2009

Þriðji af 2009

Allt gott og blessað í ræktinni igen...verkamaðurinn virðist hafa fundið vinnugetuna aftur því gufan er farin að virka : D jibbý skippý...getum við Karina farið að taka upp á okkar undarlega poti og kroppaspegúleringum aftur. Við föttuðum einn daginn að í gufunni eigum við það til að pota voða mikið í hvor aðra og ræða hina og þessa parta á líkamanum sem krefjast athygli okkar þann daginn!!! Til mikillar hamingju uppgötvuðum við þetta einn daginn þegar engin var með okkur í gufunni svo nú reynum við að hafa hemil á okkur þegar aðrar stúlkur slysast þarna inn...

Hvað segjum við svo um mars...!!!
-Byrjaði á fyrsta degi mánaðarins að fara í mat til nýju "tengdafjölskyldunnar" hehehe búin að eignast nýja familíu enn og aftur en mömmu og pabba er alveg sama því þau vita að þau eru hin einu, réttu og BESTU : D Geggjað huggulegur dagur með 2 kolvitlausum hundum, 4 kolvitlausum dönum og svo minni eina ruglaða íslendingnum á staðnum!!
-Seldi flottasta hótelinu í Århus myndir...eða gerði vöruskipti við veitingastaðinn á hótelinu. Man ekki hvort var búin að sýna ykkur e-ð af myndunum svo set e-jar með hér á eftir...
-Dinner og keila með vinnunni...ussssss...meira ruglið...nei, nei usss...skulum ekkert ræða það...
-Stelpuhugga með Láru og Karinu : D aaahhhhhh

-Langþráður Köbentúr: Æ,ó svo gott svo gott. Við Chilie drifum okkur af stað, gistum á SAS hóteli á Amager rosa fínt og kósý. Voru uppfærðar í buisness class þegar mættum á staðinn, því þakka ég vingjarnlega íslenska hommanum í lobbyinu TAKK TAKK...nú svo var drifið í að sýna, eina dananum sem ekki hefur verið í höfuðstaðnum, borgina. Labbi labb...endað á Nyhavn...skellt aðeins í sig og svo kvöldið endanlega endað á e-jum stað með lifandi tónlist...voða gott : D þar enduðum við í sálfræði og félagsmála ráðleggingum, björguðum alveg kvöldinu fyrir einni gamalli og góðri og stungum af frá Grænlendingum sem voru voða kátir með okkur!!!
Næsta dag var nú frekar lítið loft í okkur svo við röltum einn túr í Kristjaníu...loksins hef ég fengið að líta slottið...annars lágum við bara í rúminu og strippuðumst um á baðkápunum okkar : D þar til við drifum okkur af stað í ammlis hjá Malene hans PésaKalls...hörku partý þar sem aumingja Chilie fékk litið á ekta íslenskt skrall...menn að rífa síg úr fötunum, feður að hrista maga, rass og læri milli þess að reyna að kenna syninum að dansa eða gefa honum smá dangl í hausinn!!! Nú við enduðum á íslendingabarnum...(hvað er það með þessa íslendinga og að gúppa sig alltaf saman....engu skárri en þjóðernin sem þeir sjálfir kvarta yfir þarna heima!!) En aftur upplifði Chilie nýja hluti...nú var það hroki og dónaskapur íslendinganna...þeir vildu bara ekki tala við hana vegna þjóðernis!!! Sem betur fer voru það ekki allir...svo við fórum glaðar og kátar frá kvöldinu...þangað til ein okkar þurfti að skríða inn á baðherbergi og faðma klósettið pínu : s
Sunnudaginn notuðum við í að rölta um Istedgade, kíka á kynlífshjálpartæki eins og maður gerir þar og svo bara hugga okkur á Kaffihúsi...sem skemmtilegt nok ég hafði verið á áður með Gundi gjéllu hér um árið þegar Lordi vann óvænt júró ; )

Restin af mánuðinum hefur svo farið í ræktina og vinnu...ég hef ekki einu sinni séð hana MóMó mína eða Kónginn...fékk tómt í magann þegar hún sagði að það væri líka ca. 1 mánuður síðan við sáumst...!!! Þessu verður kippt í lagið yfir páska : D sem minnir mig á það...minns fékk páskaglaðning...2 páskaegg í molum og 1 heilt!!!(ekki allt frá sömu manneskjunni) Takk fyrir mig...þið eruð krúttulegust í heimi STÓRT KNÚS.
Nú og svo má ekki gleyma að ég gerðist blóðgjafi í Danó...gott að vera komin í gang aftur með að láta tappa af sér : D fannst það gott og gaman heima og held bara að það verðir jafn ánægjulegt hér í nýja heiminum!!!

En nú er ég búin að rausa í næstum klukkutíma svo segi stopp...Verð þó að segja að lokum að aprílmánuður byrjar skringilega, ringlandi og afar óvænt en ekki á vondan hátt...held ég...nú sjáum við hvað gerist!!

Knús og kossar

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Bíddu bíddu ringlandi skringilegt er HVAÐ? Hvað er það? AAAAAAA ég er forvitin...

kveðja sú írska

2:11 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já já litli írski leprikoninn minn nú verðum við bara að plana playdate á skype fyrir ringlandi skringilegt hehe ; )

7:57 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

jiminn glææææsilegar mender (sagt í kellingatón a la Elsa Lund). Gaman að lesa hvað á daga þína drífur, sem virðist vera margt og merkilegt :-) hvenær verður þú næst á íslandi? Ég fer um miðjan maí heim og verð í mánuð...

xx
Gugga edinborgari
http://gigibee.wordpress.com/

4:29 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Æi ástarhnoss... minns langar svo bara að vera með þinns, hvort sem það er í kroppaspekúleringum eða kaffidrykkju eða köbenferðum!
lovju
gamlan a klakanum

11:40 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

væri alveg til i Koben túr undir þínu gædi:0)


kveðja úr roki og rigningu! grrrrr

6:37 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home