þriðjudagur, janúar 27, 2009

1. mánuður af 12...

Jæja...fyrsta mánuði ársins er að verða lokið og hefur svona líka liðið rólega en hratt fyrir sig....vorum einmitt að tala um það við MóMó að tíminn virðist hreinlega hafa stolið sér hraðbát og stungið af...stundum líður mér pínu eins og ég liggi á svona pylsu sem er dregin á eftir og skoppa út yfir allt að reyna eftir fremsta megni að halda mér fast á lurrunni....

En jammsi bammsi...hvað á daga mína hefur drifið hér í byrjun ársins...kíkjum aðeins á það ; )

Strax í byrjun árs var farið í að panta flug til Iceland the great...sem hefur það barasta ekki svo great, en landinn stendur sig eins og hetja við mótmæli og jólatrésbrennur!!!
Þegar það var komið á hreint, með mikilli hjálp Hrefnu minnar og pápa sem lögðu bæði fram ómissandi aðstoð við að fá sem mest út úr flugfélögunum fyrir sem minnst, var bara unnið eins og mó-fó þar til reisa hófst...
Heima unni maður sér við gott yfirlæti Æ hvað er hugsað vel um mann þegar maður loksins birtist á klakann...Klefna svoleiðis skottuðust um rassinn á prinsessunni eins og ekkert annað væri til. TAKK ÁSTIRNAR MÍNAR...brósi gaf svo leyfi að fá að gista í kattarherberginu...Skoppi var ekkert alltof hrifin af þessari konu sem ryksugaði rúmið og þreif lyktina hans burt!!!
Ferðinni var svo líka haldið austur á firði...eða FJÖRÐINN eina...auðvitað var keyrt beint úr fluginu út í Herðubreið að finna konuna sem ferðin átti að heiðra : D stóra syss fyllti nebbla 5 tugi svo ekki gat maður bara setið heima...hún starði nú bara á mig og fór svo að gráta. Ammlis-stelpan hélt svo þessa líka hörku veislu(...enda ekki að ástæðulausu að maður mætti á klakann...sleppi aldrei partý hehehe), þar sem var boðið upp á fínasta mat og dansað fram á nótt. Var líka svo heppinn að pabbi átti afmæli daginn eftir svo fékk að vera með honum á ammlisdaginn líka.
Then back to Rækjavik...beint úr flugi til Jóa hönk...úff myndi ekkert henda honum frammúr rúminu fyrir að slefa á koddann sko...við tókum smá glímu, fékk hanskaklæddann fingur troðið upp í munninn og Hrefna fékk GOLF-olnbogann sinn lagaðan ; ) við tóku svo svaka huggulegheit í 2 daga mmmm TAKK FALLEGA FÓLK

En heim er ég komin aftur og vinna, rækt og stirt bak tekið við...nú skulum við sjá hvað febrúarmánuður býður upp á...læt ykkur vita ; )

Myndir á leiðinni...Knúsi knús...

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Elsku Gyða.
Margar góðar afmælisgjafir fékk ég en best var þó að sjá þig labba inn í eldhús í vinnunni minni.
Takk fyrir komuna, þessi helgi gleymist seint
Þúsund kossar til þín frá mér .
Kv. Ragga

5:50 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

takk fyrir yndislegt kvöld!
knús og margirmargir kossar
Agnes

3:23 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ skvísa og gleðilegt ár ;-) Vona að þú hafir það gott og að bakið fari að mýkjast örlítið...svo sér maður þig vonandi í nánustu framtíð :-)

3:40 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Miss u love:0)
kíki alltaf á síðuna þína reglulega ;0)

10:16 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home