Síðasta vika...þessi vika

Í síðustu viku....
...fékk ég bauga niður á undirhöku
...eldaði ég hafragraut 3 sinnum...OJ
...komst að því að ég geng í jólasveinastígvélum
...prófaði ég að syngja en það var fljótt þaggað niður í mér

...fékk ég stresskast yfir að vera ekki búin að pakka einum hlut fyrir flutninga
...fékk ég töffaðasta matarstellsdót sem gæti hugsað mér
...var skömmuð fyrir að gefa ekki nammi í morgunmat
...fékk ég þvottklemmu milli brjóstanna
...horfði ég á póstinn pál ca. 400 sinnum
...fann ég hausklóru

...eldaði ég bæði mexikómat og tyrkneskómat (mjög skandinavískar útgáfur þó ; )
...sá ég 1 kúkableyju og 1 piss í kopp
...fann ég út að ég ætla EKKI að verða einstæð móðir og AÐ ÉG DÁIST AF ÞEIM SEM ÞURFA AÐ BAKSA VIÐ ÞAÐ
Í þessari viku...

...flyt ég
...þarf ég að senda einn afmælispakka
...ætla ég að stela kössum í vinnunni
...þarf ég að finna út úr fataskáps og rúm flutningum
...skrúbba ég gólf
...verð ég að finna út úr drengja-myndunum, royale-myndunum og stelpu-myndunum
...verð ég að muna að panta flöskur
...á ég að taka myndir af Stig krúttubollu

...verð ég í raun að vinna þegar á að vera að flytja
...mun ég ákveða hvort og hvernig jólakort ætla að senda
...á ég eftir að henda dóti og fötum
...á eg eftir að geta sett hárið upp í spennur því ÉG FER Í LITUN


5 Comments:
maður verður svo "fróður" um margt þegar maður er móðir....og verður að setja megnið af grænsunum sínum til hliðar....en ég vissi ekki að þú hefðir verið púuð niður í söngnum...ég hélt hann væri alæta á söng þar sem að ég syng ekki vel og hann vill helst að ég syngi upp í eyrað á honum:/...móa mamma
upptekin mín kæra, að vanda.
GANGI ÞÉR VEL Í FLUTNINGUNUM!
sammála þér um einstæðu mæðurnar, foreldrastarfið er nógu erfitt þó að tveir einstakilngar deili með sér verkum..., nema annar aðilinn sjái að mestu leyti um þetta yndislega en þó óeigingjarna starf.
snjókarlabros til þín
Agnes
verð að bæta við......GEGGJAÐ MATARSTELL!!!!!!!!
ALVEG Í MINUM ANDA...
Agnes
Hæ Gyða
Verð að kvitta fyrir innlitið hjá þér.
Gaman að fylgjast með þér hérna. Bestu kveðjur að austan Ágústa, Gunnar Árni, Agnes og Sveinn Gunnþór
Hnoss! Mikið er ég glöð að heyra að þú hafir lifað einstæðumóðurhlutverkavinnuna af!! Við einstæðu. erum nefnilega ekki kannski bestu kandidatar.. hehe jú hvaða vitleysa, ég er viss um að þú naust þess í botn á köflum! :p Vona að flutningarnir hafi gengið vel x hme
Skrifa ummæli
<< Home