sunnudagur, október 05, 2008

Sunnudags hugga


Þá eru sunnudagsrútínan búin og sunnudagsundarlegheitin á leið inn !!!
Sunnudagsmorgnar eru æði : D
-sitja með sunnudagskaffið sitt og sunnudagsbæklingana sína, sem eru by the way ekki bara léleg afþreying fyrir mig heldur lærdómur (er ekki að grínast með þetta...erum að tala um hvernig kjúklingurinn liggur og hvernig ljósið er lagt á rauðvínsflöskurnar o.s.frv.).
-ásamt sunnudagskaffinu nýtur maður sunnudagsmorgunmatsins, sem er þá ekki vanaleg ab-mjólk & múslí í lestinni, í dag var það beygla mmmmm.
-til að þurfa nákvæmlega ekkert að hugsa kveikir maður á imbanum & fær þar sunnudags FAB FIVE sem kennir manni allt um að breyta lúðum í hönka eins & allir vita hehehe

Svo fara sunnudagsundarlegheitin að læðast inn :s
-maður fer að hugsa um hvaða vitleysu maður hefur verið að gera í líðandi viku, nú eða huggulegheitin sem maður átti saman með vinum mmmm nice ; )
-kroppurinn fer að kalla á frískt loft, sem fær mann til að huga að sunnudagshreyfingu...þá er það ákvarðanir...á ég að hlaupa Brabrandstíginn, hjóla til MóMó eða athuga með æfingarfélaga fyrir fjörugri æfingar hahahaha væri nú ekki leiðinlegt :D
-nú svo líður sunnudagurinn & ef maður er ekki afkastamikill fær maður sunnudagssamviskubit OJ. Hef t.d. hugsað mér í dag að photoshoppa myndir sem ég gæti mögulega (haldið ykkur fast) fengið BORGAÐ FYRIR ; ) VEI VEI...sjáum hvað gerist!!
-Svo í lokin man maður að þegar sunnudeginum lýkur þýðir það að maður þarf að vakna upp á vikudegi sem þýðir...snemma upp, lest, ab-mjólk & múslí, lest heim & snemma í rúmið...hhhmmmm kannski bara ekki svo slæmt!!!

Og hvað eru svo margir sunnudagar í bloggi?

6 Comments:

Blogger harpa said...

sunnudagarnir hér byrja á samningaviðræðum við makann um hvað hann fái í staðinn fyrir að fara á fætur með litla manninn og leyfa mér að sofa aaaaaeðins lengur.

svo eru þónokkrar kaffiuppáhellingar sem hefjast ca 2 klst eftir samningaviðræðurnar.

9:22 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

sunday sunday... im sad to say that they are basically no different from another day - but hey then my other days are never the same, so i have not much to complain about ;) Big love your way x skype sometime this week? will be home in bed, studying and taking breaks from studying :p love you xxx

12:47 e.h.  
Blogger Sirrý Jóns said...

...fjörugri æfingar?!?!?! Er eitthvað sem er ekki að rata inn á þetta blogg? Bútíkall kannski? Einhver sérstakur? Hmmmm? Ha???

11:34 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

aðrar æfingar...
hmm, loðið...mjög loðið
híhí
sunnudagskoss (reyndar kominn þriðjudagur)

12:19 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

@Harpa...já, greinilega good times sem ég þarf að glæde mig til ; ) hahaha!!!
@Nafnlaus...sunnudagarnir þínir ættu að vera að kúra upp í rúmi með mér að horfa á Buffy, Angel, Firefly eða Tim Burtons movies...en við verðum víst að bíða með það til gamalsaldur!! ástarknús
@Sirrína&Angeska...auðvitað er maður með e-ð loðið í gangi...maður á alltaf að hafa e-ð loðið með!! En Sirrý...no comment!! OG Agnes þriðjudagskoss (samt kominn miðvikudagur) til þín...hvernig gengur dömunni svo að vera hætt í Hlíðinni ágætu!!?

8:07 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Eg vaeri alveg til i einn svona adgerdalausann sunnudag.. Verst ad nu er eg bara ekki ad setja sjalfann mig i fri heldur alla nemendurna mina lika a sama tima svo thu getur rett imyndad ther hvad Sammi fraendi kikir oft i heimsokn a slikum dogum.. hehe
Vona ad thu hafir thad bara gott, naesti sunnudagur hja mer er thegar uppbokadur fra 9-23... vinnan gofgar manninn..
PS: Ef eg horfi a launin min i islenskum kronum ma segja ad thau hafi tvofaldast fra thvi thegar eg byrjadi ad kenna, ekki vaeli eg i kreppunni hehehe :D

10:15 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home