Jæja gamanið búið í bili!!
Samt ekki fyrir þennan ungling...sem ákvað að ganga í þrítuga klúbbinn þann 15 sept. velkomin Ívar minn og tillykke.
Annars er gamanið búið hjá kjéllunni í e-rn smá tíma...hlaut að koma að því, búin að vera á yfirkeyrslu í nokkrar vikur núna, hlaupa, skóli, djamma allt of mikið og ósómast eins og ungar dömur eiga ekki að venja sig á að láta...svo auðvitað þegar fór að slakna á fylltist stelpan af kvefi sem endaði með glansandi/dansandi augum og gott ef ekki beinverkir séu að láta kræla á sér líka...en iss maður er ekki víkingur fyrir ekki neitt svo burt með væl og skæl enda bíða þrif á stigaganginum mín rétt handan við hornið.
En jammsi...hvað gæti svo verið fréttnæmt...
Skóli 1: er búin í skólanum næsta föstudag 26.sept eitt af lokaverkefninu er að setja upp sýningu, við verðum með sýningu 1 dag í Århus og 1 dag i Herning...allt að smella saman þar. Hef loks hætt mér í að sýna fleira fólki myndirnar mínar og þar af 3 kennurum...sem voru bara vel sáttir við stelpuna jei :D gamli góði sagði m.a.s. að ég tæki góðar arkitekar-myndir víiíí
Skóli 2: viku eftir að hætta í skólanum byrja ég á 6 vikna workshoppi (hef eflaust sagt ykkur frá þessu áður) í Viborg, þar sem það er e-ð vinnumálatengt þá fæ ég borgað frá a-kassanum eða stéttafélagi eða e-ð álíka á meðan því stendur plús ferðastyrk til að borga lestarkortið niður...enda kostar það eitt og sér 30 þús takk fyrir...
Vinir og vandamenn: Karina stungin af til Íslands...og ég eftir í ástarsorg í Århus hehe nei nei...fann mér bara aðra unga dömu í sömu byggingu til að taka hennar stað. Lára Klára dregur mig áfram í hlaupin og svo erum við hægt og rólega að byggja upp þennan fína matar/hlaupaklúbb, duglegar stúlkur þetta...MóaFóa og familí er Köben þessa helgi svo ég fékk forræði yfir Peidó...svona bara að ég beri ekki neina pest í húsið!!
Pési Pungur kíkti hingað síðustu helgi...hann ásamt skriljón öðrum vitlausum íslenskum karlmönnum mættu á svæðið til að spila fótbolta og drekka sig fulla...úff púff...pínu erfitt þar sem þetta var 3ja helgin í röð, konan er ekki eins spræk og hún var fyrir 10 árum síðan :s
Ástarlífið: hehehe þið fáið ekkert að vita hér...ekki á meðan ma & pa liggja í laumi bakvið skjáinn á árbakkanum...maður verður að reyna að vera pínu dannaður í því sem maður setur niður á skjá nú á þessum síðustu og verstu ekki satt ; )
En jæja, þetta er eflaust orðið allt of langt bull af engu svo segi bara over & out og knús á liðið...

2 Comments:
Hvernig er það, nær þessi ferðastyrkur ekki yfir vinnuferðir til útlanda líka?? Mér finnst t.d. að það vanti tilfinnanlega ameríska menningu inn í þessar myndir ykkar. Allir vita jú að Ameríka er vagga menningar og lista og þá ekki síður í ljósmyndalist :p
hehe, sakna þín, held ég hafi ekki heyrt í þér síðan í vor :S
Já það er nóg að gera hjá frúnni sé ég!! Á maður ekki bara að gefa skít í allt hérna heima og flýja land til Aarhus?! Er ekki svo svakalega gott að lifa í útlöndum á íslenskum aurum...? Vá hvað ég væri til í það :) knús frá konunni sem ekki mikið er eftir af :p
Skrifa ummæli
<< Home