fimmtudagur, ágúst 28, 2008

Lifandi still

Jæja...ekki margt til að segja svosem...en ætla samt að basla einhverju saman svo fólk haldi ekki að maður sé dauður!!

Var sumsé að byrja lokaholl í skólanum nú síðasta mánudag...úff...kom heim með stress eins og allir danir fá ca. 1x í mánuði...aðeins of mikið sem átti að gera fannst litla heilanum í gömlu konunni...

-setja saman möppu
-gera heimsíðuna klára
-búa til nafnspjöld
-setja upp sýningu Á 2 STÖÐUM!!!

og þetta þýðir auðvitað...

-endalaus photoshop vinna
-mikil flash vinna
-prenta út myndir fyrir möppu
-búa til/kaupa möppu
-hanna nafnspjald og fá prentað
-prenta út og hengja upp myndir fyrir sýningu
-vinna fyrir og meðan sýningum stendur

Heilinn fór aðeins á yfirkeyrslu...en þetta þarf náttla ekki að vera slæmur hlutur ó nei ó nei...nú er bara að bretta upp ermarnar og henda sér í þetta...enda konan alþekkt fyrir frestunaráráttu sem passar vel núna...pressan komin á og þá fer litlan að vinna ; )

Annars utan skóla gengur lífið sinn vanagang...hef t.d. síðan síðast gert...
-hlaupið eins og mér sé borgað fyrir það...m.a.s. pínu þunn
-horft á handboltaleik og verið stolt af íslandinu mínu
-kíkt á barinn og dissað ameríkanana sem voru þar...
-lesið í bók
-borðað endalaust mikið saman með vinum og sætulíum
-farið í afmæli hjá sætasta kóngi danmerkur (sjá sæta hér til hliðar ; )

Vona innilega að hafi e-ð meira spennandi að segja næst en til þá lifið heil

2 Comments:

Blogger hme said...

Djöfull er ég ánægð með þig hvað þú ert dugleg að hlaupa mannsveskja! Þú færð útrás í því og byggir upp orku og sköpunargleði fyrir alla vinnuna!
Go girl go!

9:56 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þú ert svo dugleg kona! :-) Ég ætla einmitt að vera dugleg að hjóla eins og þú ert dugleg að hlaupa ;-)

10:01 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home