mánudagur, júní 16, 2008

Kominn tími á e-ð nýtt...

Jæja komið langt yfir þökkunar-tímann (ef það er til e-ð sem heitir það!!) En vildi bara segja takki takk fyrir kveðjurnar nær og fjær, í kortum og pökkum, á bloggum og commentum, mailum og símtölum...takki takki takk og kyssi kyss góða fólk : D

Ammlisdagurinn gekk annars rólega fyrir sig...mætti með smá höfuðverk í skólann eftir amfmælislamb hjá Chef kvöldið áður...beint í að sitja fyrir og vera sæt (eitthvað sem konan á voða auðvelt með ekki satt hehe!) hafði ekkert í hausnum til að taka myndir sjálf svo ég gerðist módel. Restina af deginum hafði ég það huggulegt með vinum hér og þar voða fínt.
Daginn eftir fór ég svo í tívolí með syss og familíu, það var rosa huggó ; )
Föstudaginn 13 (...úúúú´´u) hélt ég svo lítið grillpylsu-gilli, ekta íslenskt veður rok og smá regn, alveg ekta haha!! Það endaði með að við fluttum okkur inn og þar breyttist gillið í unglingapartý í eina herberginu mínu...allir á rúminu að skoða youtube hahahaha en issss það var bara nice.

Hér fáið þið svo líka smá kík á það sem ég er að verkefnast í skólanum núna rétt fyrir sumarfrí
Hart ljós-Karsh lys

Mjúkt ljós-Penn lys

Hart ljós-Karsh lys

Hart ljós-Karsh lys...líka búið að "eyðileggja" eða fjarlægja tónana í andlitinu...

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Gyða mín.
Fyrirgefðu að ég hætti að tala við þig á msn áðan. Talvan neitaði að virka ég hélt að ég gæti nú fengið mér nýja en svo var nú ekki.
Þetta eru nú aldeilis fínar myndir hjá þér.
Kveðja. Stóra syss

7:27 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þú ert nottlega bara fæddur snillingur ástin mín!
knús frá tvíburunum í stússinu maður úff :) ekki vinna of mikið í sumarfríinu þínu!!

4:26 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Gyða okkar.
Innilegar hamingjuóskir með áfangann þ.e. tugina þrjá um daginn. Þú ert nú meiri snillingurinn í ljósmyndun, frábærar myndir hjá þér. Hlakka til þegar þú ert búin með ljósmyndanámið. Hafðu það gott í sumar.
Bestu kveðjur frá Seyðó.
Ágústa, Gunnar Árni, Agnes og Sveinn Gunnþór.

6:30 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

stíll yfir myndunum vinkona!

vona að allt gangi vel hjá konunni á fertugsaldrinum

miss u darling
Kvefaða spánarprinsessan

9:38 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home