þriðjudagur, maí 20, 2008

Jæja þá er júrógleðin að byrja...
sit sveitt hér við tölvuna að reyna að finna Alla leið hluta 1...en ekkert gengur, Palli er að gera mér STÓRAN grikk við að hafa bara hluta 2 og 3 inn á Rúv...eða kannski dagskrárstjórinn...hver sem það er!!Er allavega að fara til MóMó í kvöld og horfa á frændur okkar norðmenn taka þetta í kvöld!! Þurfum að horfa á útsendingu á NRK 1 því danir eru svo miklir egóar að þeir senda ekkert út fyrr en þeir sjálfir eru með...!! Gæti vel trúað þeim til að sleppa keppnini yfir höfuð á laugardag ef þeir komast ekki með!! Neeeeiiii nú gekk ég of langt...þeir eru ágætir greyjin hehe

En ég kom sumsé til íslands um daginn...rosa fínt, nema hvað að ég finn einhvern vegin alveg að ég á ekki heima þar lengur!! Pínu sorglegt en meira svona skrítið, því ég elska landið mitt svo ógurlega mikið. Hhmmm jæja já. Þannig er nú bara það svo best að gera gott úr því.

Flaug upp til Islandia fimmtudag 8.maj...sá brósa í ca. 2 tíma áður en hann hélt á vit ævitýranna á Patreksfirði...
...annars fékk ég íslenskan ís, mömmu og pabba suður til að knúsa litluna sína, tjútt 3 kvöld í röð...mis löng og full en góð samt sem áður....fór í afmæli, fékk hrygg, huggusnakk með stigarhlíðargjellu nr. 1, roadtrip með góðu fólki, fór í bað aaahhhhh og fékk að kíkja á GÓÐAN rass á sama stað og á sá Ingvar E...OMG. Ef ég er að gleyma einhverju þá undskyld!

Annars er ég flutt á Viborgvej, er ekkert svo skotin í að vera single...fannst ég vera ótrúlega góð í kærustu hlutverkinu!! Svo nú er bara að hrista milliskotin af sér...(hvað heita aftur svona gaurar...brakeup dude nei...millibilsástand...nei.....djöfullinn...hann var bara.....REBOUND) fann það...hrista rebound gaurana af sér og finna svo nýjan hressann gaur til að halda mér uppi á meðan námi stendur hehehehe
Augnablik kjúllinn kallar...

Er svo í skemmtilegu verkefni í skólanum....eigum að finna okkar persónulega stíl...svona artífartí stíl....alveg e-ð fyrir hana artí Gummo!! Eigum fyrst að finna ljósmyndara og kópera hans/hennar stíl....þessi var fyrir valinu hjá mér...Duane Michals...verður spennandi að sjá hvað kemur út úr þessu..!!
En nú biðst ég afsökunar á löngu bloggi...hætti nú og sé ykkur kannski aftur seinna ; )

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

call me if you need a model!
xxx
i like your style ;)

11:02 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Fín flott...vantar alltaf módel og helst núna!! en ef þú ert sú sem ég held þú sért þá bara kemstu ekki til mín akkúrat núna...eða hvað...ameríkufari!!

9:06 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home