mánudagur, október 29, 2007

The Biggest Looser

Í gær lá ég upp í rúmi og fletti í gegnum sjónvarpsrásirnar...þar rakst ég á tyrknesku (að ég held!!) stöðina mbc...þar sem þeir sýndu tyrkneska (að ég held!!) útgáfu af the biggest looser hahaha það var gaman. Ég skildi ekki orð en fann óneitanlega til með grátandi tyrkjum (að ég held!!) sem vógu allt frá 84.6kg-186.4kg. Þarna voru hálf sköllóttir töffarar, stóri feiti lúðinn, fína konan, blæju konur (skemmtilegt að segja frá því að önnur þeirra var með þykka húfu og slæðu um höfuðið...allt í gúddí með það, nema hvað hún var í þykkri síðri kápu líka sem hún tók ekki af sér...hún má hafa tapað duglega kg. bara með að svitna í þessa ofur kápu, sem ég efast um að superman hefði getað flogið með...hún virkaði stór og þung...) og öll voru þau í leit að lífshamingjunni sem fylgir því að vera grannur og fallegur. Allavega held og lykke kæru tyrkir (að ég held!!) JÁ, VIÐ ERUM ÖLL EINS UM ALLAN HEIMINN.
Mikið erum við, lesendur góðir, heppin að vera dead gorgeous, superslim bjútíqueens!!! Ekkert stærsti taparinn fyrir okkur!!

Segið mér annars...eru þeir ekkert farnir að framleiða íslenska útgáfu af þessum eðal-þætti...!!?

Annars takk fyrir góð og uppörvandi comment hér frá síðasta bloggi mitt kæra fólk. Er mun rólegri en það leynast samt smá crazy ímyndir undir yfirborðinu ennþá...hristi þetta af mér á næstu dögum ik'? Over and out í bili. kissi-kiss

1 Comments:

Blogger Sirrý Jóns said...

...er á Seyðó svo ég komst á netið, bloggaði meira að segja. Fer alveg að fá netið heima svo þetta fer allt að lagast - vonandi! Langar að heyra í þér svo kannski plata ég ma og pa til að leyfa mér að hringja. Sakna þín´, knús og kossar...

10:49 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home