þriðjudagur, október 23, 2007

Raunir í Danmörku

Eins og félagi minn í ammeríku verð ég að skrifa inn eitt stykki ekki skemmtilegt blogg...líklega er þetta bara vegna þess að ég verð að koma þessu frá mér því ég er að klikkast í hausnum, ég VIL ÞETTA ÚR HAUSNUM...
Málið er að ég held að ég sé gjörsamlega að klikkast, veit ekki hvort maður á að kalla þetta einhvers konar útgáfu af stressi!!! (ekki hjálpar álag í vinnu, vinarsöknuður, samviskubit yfir mataræði og engri líkamsrækt, peningaráhyggjur, skólahugleiðingar og að alast upp með meðfæddan beinasjúkdóm!!)
Við búum semsagt í íbúð þar sem svefnherbergið liggur á litlu lofti og þangað upp liggur frekar brattur stigi...nú er maðurinn á heimilinu búinn að detta eða kannski renna niður tröppurnar 2x á ca. einum og hálfum mánuði...og þetta hefur svoleiðis lagst á sálina á mér!! Ég fæ ekki frið í höfðinu. Það tekur langan tíma að sofna því ég sé hann fyrir mér detta niður tröppurnar, ég hef vaknað upp á nóttunni við að dreyma það, ég held fyrir eyrun þegar hann labbar niður á morgnana því er hrædd við að heyra hann hlunkast niður, ímyndinn dúkkar upp í höfðið á mér á ólíklegustu tímum og svo eftir seinna skiptið fæ ég óstjórnleg grátköst þegar þessar hugsanir koma upp í hausinn!!! Nú hefur reyndar verið ákveðið að setja upp handrið og glidstopper (held það séu gúmmímottur) á trepin...hvað gerist þá í hausnum á mér?!!! Ég fer að ímynda mér að hann detti bara um motturnar eða verði svo óvanur þeim að það valdi falli...eða bara hreinlega að hann detti alla leið frá toppnum (mögulega dauðþreyttur á morgnana eða fullur). Ég veit hreinlega ekki hvað ég á að gera...? Get ekki haldið svona áfram því ég er við að verða veik af þessum óstjórnlegu sjúku hugsunum. Er þreytt, stressuð og komin með taugaveiklunarskjálfta!!!
Ef þið hafið einhver ráð handa mér eru þau vel þegin...

11 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Jahérna, aldeilis að sálartetrið er að hlaupa með þig í gönur núna..
Ég veit ekki hvað skal segja nema að þú reynir að sannfæra þig að motturnar og handriðið virki.
Nú svo væri líka alltaf hægt að flytja bara.. t.d. til Roskilde :p
Hugsa hlýtt til þín Gyða mín, við eigum eftir að standa uppi sem sigurvegarar.

12:41 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Elsku Gyða mín. Ekki gera þér þetta, reyndu nú heldur að líta á björtu hliðarnar á þessu öllu.
Ef það verða settar gúmmímottur verður þú að sjá til þess að þær verði límdar níður og þá eru ekki miklar líkur á því að hann flækist í þeim já eða þú.Svo er eins og Evert sagði sá möguleiki að skipta um íbúð. Bíttu bara á jaxlinn og þurkaðu tárin og hættu að hugsa svona.
Kveðja frá stóru syss og miljón kossar til ykkar

3:40 e.h.  
Blogger harpa said...

Roskilde.. eða hreinlega köben!! Mig vantar launalausa auper sem nennir að taka til og passa þegar gormur kemur.

hef samt upplifað svona paranojur sjálf ansi oft í gegnum tíðina svo ég veit hvernig þér líður. En handrið og og svona gúmmímottur eiga eftir að gera gæfumuninn - sannaðu til!

3:54 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Dettu bara vel í það þá lagast allt
kv. stæðsti bró.

4:55 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir kæra fólk...sjáum til hvad gerist, ef tetta lagast ekki læt eg leggja mig inn!!! :s

6:09 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ég veit hvað er að þér...en ég segi það ekki hér...er komin með internetið svo skybe skybe skybe babe og ég skal leiða þig í allan sannleikann
forever yours Guðný

10:44 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Lagið okkar Gyða mín, fann það ekki á íslensku svo þetta verður bara að duga þar til ég get komið og sungið það með þér :D
http://www.youtube.com/watch?v=86ADWPgAjuE

5:25 e.h.  
Blogger hme said...

elska þig svoooo mikið!!

12:41 e.h.  
Blogger gulla said...

ég segi bara eins og vitur manneskja sagði mér einusinni.. ekki hugsa svona hrikalega mikið... það gerir bara illt verra... love you longtime Gyðulingur

8:31 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já hugsa minna og hringja svo í lyftufyrirtæki og fá eina í íbúðina þá er málið úr söguni.

11:14 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

eitt skref í einu, sugahon.)

svo veistu ef þú ert að farast úr stressi í Dk, þarftu að fara að kíkja á st.71 það dregur úr stressinu, eins og þú kannski manst:0)
kv.A

6:09 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home