miðvikudagur, september 26, 2007

Lata stúlkan...

Var það ekki lata stúlkan sem vildi bara sofa og sóparnir spörkuðu henni framúr...?

En allavega það er undarlegt hvað maður getur verið öfugsnúinn og argur annað slagið þegar maður vaknar...!! Þegar maður á í raun að vera hress og útsofinn!!!!!!!! Dæmi um þetta var bara akkúrat núna í morgun. Hér kemur sagan af örgu stelpunni...njótið

Arga stúlkan svaf á sínu græna þegar maðurinn við hliðina á henni stóð upp og raskaði fögrum draumaheimi hennar...svo sem ekkert með það nema stuttu síðar vaknar hún við að tekið er úr uppþvottavélinni...arg og garg glumdi í höfðinu á henni, "hvað í andsk. er HANN að gera þetta"...Stúlkan sofnar aftur. Stuttu síðar vaknar hún við að þvottavélin er að vinda...arg og garg glumdi aftur í höfði hennar, "hvað í ANDSK. er HANN að hugsa að setja í þvottavél"...Stúlkan sofnar aftur. Enn og aftur vaknar stúlkan og ákveður nú að standa á fætur...kemur niður úfnari en fallegasta lukkutröll og andfúlari en sjálfur jólasveininn. Hún á voða bágt með að bjóða góðan daginn vegna illsku sinnar yfir að betri helmingurinn hafi drifið í húsverk, pantað klippingu og á góðri leið með að vera klár fyrir daginn!!! Ca. klst. síðar rembist stúlkan við að hengja þvottinn úr helv. þvottavélinni þegar það rennur upp fyrir henni hvursu endemis vitlaus hún getur verið...hvursu indælt er að vakna við það að búið er að taka úr uppþvottavélinni og þvotturinn einu skrefi nær því að vera komin ofan í ferðatöskuna....já, med det samme rann reiðin af stúlkunni, hún hristir hausinn og allt arg og garg hverfur úr höfðinu...hún hugsar "mikið ofboðslega á ég gott að eiga svona fínann mann sem drífur í hlutunum" og með bros á vör sest hún við tölvuna og skrifar í löööööngu máli hvað hún er vitlaus...

Sagan af stúlkunni og long lost vini hennar frá ammmerrríkunni ætti svo að koma a morgun ; )

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Allt spurning um viðhorf og ég er mjög glaður að sjá að þú hafir nú náð að sjá þetta frá öðru sjónarhorni en því fyrsta.. Bíð spenntur eftir sögu morgundagsins..

1:01 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hehehehe! Alltaf gaman að vakna sem algjör grumpy-sen ;-) Gott að þú sást af þér samt...það eru ekki allir svo heppnir að eignast mann sem að nennir að taka til hendinni ;-) Við duttum greinilega í lukkupottinn ;-) híhí

3:49 e.h.  
Blogger hme said...

minns saknar þinns voða voða voða mikið x

9:40 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home