föstudagur, janúar 26, 2007

Dönskumælandi finnskhreimaður votti!!

Jæja, er að njóta seinni frídagsins...aaahhhh eftir að standa í 3 daga á benunum var komin tími á svefn og setu.
Fór í minn fyrsta billedgennemgang í gær : D held bara að ég hafi sloppið helvíti vel frá honum ef ég segi sjálf...víííí. Náði ekki að klára 7undu og síðustu myndina en það var allt í lagi...af 6 skáru 2 sig ansi mikið úr í gæðum. Vantaði meiri contrast í aðra svo hún varð svolítið grá og kædelig en með hina var lítið hægt að gera í myrkraherberginu hefði þurft að vera betur tekin tæknilega séð...en af þessu lærir maður ik'? Hvorug var samt eitthvað ljót eða slæm mynd...hinar fjórar voru bara fínar, ein hefði kannski getað haft fókuspunktinn á betri stað en allt í gúddí með það...svolítið erfitt að stjórna öllu þegar maður er að hlaupa fram og til baka með self timer...hehe svo ég var bara glöð og ánægð.
Nú svo var skólaball....eða fest í gær, Tyskfest-Þjóðverjaveisla hahaha æði gæði að sjá fólk klætt sem þjóðverjar, nú svo hljómaði þýsk mússík fyrir eyrum manna. Góðir slagarar eins og DaDaDa, 99 luftballons, Amadeus og hvorki meira en minna en þemalag Titanic á þýsku....við bíðum þess aldrei bætur!!! Í lok kvöldsins eftir úbbs...marga bjóra var búið að spyrja mig tvisvar hvort ég væri finnsk, því skrifuð íslenska líkist víst voðalega finnsku!!!!!!!!!!!!!!!!!! og ég tala með svo ógurlega finnskum hreim hehehe HVER Á SVO MEST KÓSÝ SKÓLA Í HEIMI...morguninn eftir introfest áttum við svo að mæta kl.10 þar sem var morgunmatur og bíó...þannig verður það annan hvern föstudag...huggó ; ) Konan sá sér hins vegar ekki fært að mæta þar sem eitthvað vantaði upp á svefn....sengen varð frekar fyrir valinu þennan föstudag aaaahhhhh
Hér kemur svo fyrsta myndin frá skólanum...mit studentkort...það er alltaf eitthvað svo sjarmerandi við svona kort með myndum....maður hugsar alltaf "hver er þessi manneskja á myndinni!!!!!!!!!!!" Mér finnst þessi ÆÐI hahahaha NJÓTIÐNú svo sé ég að bus-stoppið mitt er alveg staðurinn til að hitta fólk, í dag tók ég eftir að einhver maður var að tala við mig...hvursu lengi hann hafði talað veit ég ekki því ég var með Wesley í gangi í eyrunum...en þá var hann að fræða mig um dómsdag sem er víst í nánd, var voðalega indæll með sultardropa í nös og vildi endilega gefa mér bækling sem ég þáði ekki og sá rosalega eftir að hafa neitað. Já, hann var sannfærður um að ég yrði trúuð áður en langt um liði og lýsti vel fyrir mér tildrögum dómsdags og hvernig málin yrðu þá...skildi kannski ekki alveg allt en þó nóg. Ég verð að fara að bíða oftar eftir strætó...

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hey... ertu búin að klippa hárið á þér

12:23 e.h.  
Blogger gummo said...

jamms í des....

12:29 e.h.  
Blogger Sirrý Jóns said...

...er alls ekki að fýla þessa mynd af þér og finnska og íslenska eru ekkert lík mál hvorki skrifuð né töluð, jú bílíf mí honníðæjj...

4:59 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Shit, þetta er hræðileg mynd, næstum jafn hræðileg og myndin á ökuskírteininu mínu.. ég skal taka mynd af því og setja á mína síðu til samanburðar !!
Annars bara að láta vita að ég er ekkert hættur að fylgjast með,
já og b.t.w. ég væri ekkert á móti orðabók sko :)
Heyrðu, í þar síðustu færslu þinni bað ég um heimilisfangið þitt og ég er ekki enn kominn með það.. gætirðu komið með adressuna í mail, MSN eða SMS please ??

12:09 f.h.  
Blogger Guundi said...

o my lord og allir heilagir og Lordi líka.....ÉG VERÐ AÐ SYNGJA THEMALAG TITANIC Á ÞÝSKU Í KARAOKE----ÞAÐ ER DRAUMURINN!!!! ertu með?

12:21 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home