sunnudagur, janúar 07, 2007

Nú árið er liðið.....gleðilegt nýtt og allt það!!!

Hef ákveðið að apa eftir svo mörgum öðrum bloggverjum og líta yfir árið...hef aldrei gerst svo fræg að spá mikið í liðið ár og er því komin tími til...aðeins svona að þjálfa minnið því ekki er það besti kostur kjéllunnar!!!
Kíkjum á þetta....

Jan.: (mánuður nýrra sambýlinga...!!! minnir mig : s Hrefna hvenær fluttir þú inn??)
Ef það er ekki rétt hjá mér að hún Hrefna mín flutti inn þá veit ég ekkert hvað gerðist...minnið er ekki svo gott að geta munið 12 mánuði aftur í tímann....Allavega var voða gott að fá HME í heimilishaldið hvenær sem það var ; )

Feb.: (mánuður nýssss hársss)
Kjéllan var búin að ákveða löngu fyrir áramótin að skella af sér hárinu og byrja upp á nýtt og miðað við myndir þá hefur það gerst ca. í febrúar allavega var það voða
fínt og flott og nýlitað í bolludagskaffinu sem við HME drifum í....þvílíkt safn af bollum ÚFF...

Mar.: (mánuður ?)
Minnið er greinilega alls ekki gott.....HEEEELP people...hefur einhver á hreinu hvað ég var að gera þetta árið??????
Apr.: (mánuður ??)
Hhhhmmm held ég hafi ekkert minni.....ANYONE!!?

Maí: (mánuður eurovision)
Þetta er mánuðurinn sem vandræðaganginum var plantað í hausinn á kjéllu (hefur haldist þar út árið en er á góðri leið með að vera hristur út...) en líka þegar eurovison vinkonurnar skelltu sér til Köben og horfðu á Lordi rassskella liðið á BERAN

Jún.: (mánuður afmælisgleðihelgarinnar ; )
Nú þar sem konurnar...tvíburarnir miklu, auk a.m.k. 3ja kunningja til viðbótar, áttu afmæli í byrjun mánaðar var efnt til afmælisgleðihelgi...föst: drikkerí og sun: kaffiboð, grillpartý, spil og drikkerí...það kemur eflaust engum á óvart að singstar var ekki langt undan hehe
Nú svo var efnt til heljar fjölskylduferðar til Danó, þar sem allt liðið hittist á bóndabýli og gerði lítið annað en að dæsa af hita og borða....(hhhmm er það eitthvað nýtt...gerði mikla uppreisn og fór út að hlaupa ; )

Júl.: ......get ekki sagt að ég muni sérlega vel hér....er gaypride júlí eða ág??....annars var þetta eiginlega bara sumar of drinking and free love!!! JÚ, fór allavega til Seyðis á LungA, roadtrip með JónuBabe það var VEI gaman.....OMG og jú-hú...eignaðist FRED mína kæru CANON eos 350 D hvernig gat ég gleymt henni??!! ( = mánuður fröken FRED)

Ág.: (mánuður glóruleysis)
Hér var ekki mikið farið að spá í að flutningar væru á næsta leyti...enda fór stressið að segja til sín í lok mánaðar og kassarnir rifnir (bókstaflega) fram. Gaf mér þó tíma til að festa vini mína á mig með bleki og kikka í fjörðinn gamla og kveðja liðið þar líka.

Sept.: (mánuður flutninga)
Hætti í vinnunni, kvaddi vinina (suma hverja bara við boardinggate-ið ; ) og flutti til Danó...er þar enn...vúbdí-dú fyrir mér

Okt.: (mánuður internets-leitar)
Mér sérlega kær fjölskylda veitti mér húsaskjól í Århus, minni nýju heimaborg. Verra var að það lá við þunglyndi þegar konan fékk ekki vinnu og húsnæði upp í hendurnar

Nóv.: (mánuður léttleika og óþæginda!!)
Fékk þó bæði húsnæði og vinnu á endanum...litle did I know about the stalker waiting at work...

Des.: (mánuður pakka og huggulegheita)
Hef aldrei fengið senda né hef ég sent svo marga pakka eins og í desembermánuði 2006...huggó Julefrokost, huggó jól, huggó áramót bara huggó huggulegheit
En svona þankar á nýju ári...hér á bæ verða engin áramótaheit strengd....EN þessi kona ætlar að gera allt sem í hennar valdi stendur til að koma sínum hugmyndum um ljósmyndanám af stað og með þeim orðum get ég sagt ykkur að ég er búin að sækja um 6 mánaða kúrs í fotografi í Byhøjskolen hér í Århus....hvort maður fær inn eða er of seinn með umsókn veit ég ei....get allavega sagt að ég prófaði...IKK’?

MISS U-KISS U
Hafið það huggó, kveð í bili

3 Comments:

Blogger Guundi said...

je minn eini...aldilis eru það nú afrek á einu ári...en hvað gerðist í mars og apríl??? hmmmm látum okkur sjá...var það ekki bara Stigahlíðin og lönsar á kaffi Roma?

12:30 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

heyhey í ágúst datt ég afturábak niður brekku þegar við vorum í berjamó :)

1:59 e.h.  
Blogger gummo said...

@Guunis...jú, ætli það ekki...rasshvíld í stigahlíð og heimsins mál rædd á roma hehe
@GullPull...það er satt, að maður skuli nú ekki nefna það isssss

10:05 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home