laugardagur, janúar 20, 2007

Æ og ó nú á ég ekki eftir að tala um annað en skólann næstu mánuði...
Hér kemur þetta allt:
Við erum átta stykke í byrjendahóp...fyrsta dag fengum við verkefnið að taka self-portrett, það gekk svona upp og ofan nokkrar myndir bara af vegg vegna þess að konan er ekki nógu snögg að stökkva af stað með self-timer í gangi hehe
En eitthvað fékk hún útúr þessu. Næsta dag fengum við annað verkefni...fara 4 og 4 saman og taka portrett af bekkjafélögum, við hentum okkur 4 á kaffihús og þar var smellt af í gríð og erg...verð að segja að hafa 3 myndavélar á sér í einu er ekki það besta hhhmmmm oj aldrei aftur...þriðja dag framkallaði ég mína fyrstu filmu, HOW COOL IS THAT, æ hvor jeg er glad ; ) fjórði dagur fór í að prenta/stækka fyrstu myndina (hef þó gert áður í menntó...aðeins meira verið að pæla í hlutunum núna...ekki fjöldaframleiðsla...hehe) sem og við fengum 3ja verkefni...fyrsta fór í að taka myndir af okkur sjálfum eins og við viljum sýna okkur eða eins og við sjáum okkur 3ja er að sýna hvað/hvernig við erum EKKI...aðeins erfiðara, púha...en hugmyndirnar komu hægt og rólega...nú er bara að sjá hvort hef nægan tíma í ad skjóta 36 myndir á sjálfa mig fyrir mánudag....oj oj.
Eins og ég sagði erum við 8...og erum eins ólík og við erum mörg, þarna er samt ein stúlkukind sem er aðeins meira áberandi en við hin...og kannski ekki á svo góðan máta. Greyjið, hún vill læra allt NÚNA OG ÞAÐ STRAX skilur ekki alveg allt og verður svo ofspirruð þegar skilur ekki, var við að fara að gráta þetta var svo erfitt hjá henni (æ, hvað ég skil hana samt vel) nema hvað hún spyr og skilur ekki og spyr og verður pirruð og kennarinn verðu pínu argur en bara pínu því hann er að reyna að vera sweet. En boy er hann rólegur...talar SVOOOOO mikið og svo þegar hann stoppar og segir já..get ég sagt e-ð meira...það held ég ekki....úbbs jú halló...og stoppar ekki í laaaangan tíma. En þetta er svo kúl...vona bara að vinnan minnki snart svo ég hafi tíma til að framkalla og stækka....á að vera klár með 7 myndir á fimmtudag og það tekur TÍMA úff púff....sem ég hef ekki!!! Allir að óska mér 25 klst. sólahringa framm til fimmtudags okis??

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hey, takk fyrir dyggan stuðning í keppninni í gær, þökk sé þér og fleirum rústuðum við þessu... !! Svo er bara að vera dugleg að kíkja á bloggið og að sjálfsögðu að kvitta ;)

7:53 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

úps nú kemst upp um mig, hef ekki farið bloggtúrinn lengi :( svo ég var bara að vita núna að þú ert greinilega komin inní skóla og meira segja byrjuð :O) alger snilld.. gaman gaman :O) gangi þér svakalega vel!!!!!!

8:50 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gyða er dönsk pönkdrottining með pólíester-ívafi......hún fílar Frikka krónprins og ostepop.....og drekkur kaffe lare eins og það sé enginn morgundagur...Hún fílar ekki Istegade og vill kaupa samfellur með hauskúpum handa litlum börnum...og hún skuldar mér ennþá karaoke lag!!!

11:02 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ sætust.
Gaman að heyra að þú sért sest á skólabekkinn. Hmmmm ekki verður þú stödd þarna úti í september næstkomandi? Ef svo er láttu mig þá vita. Sakna þín. Farvel.

8:24 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home