mánudagur, júní 05, 2006

Afmælisgleðihelgin

Maður minn hvað helgin var góð ; ) afmælisstelpurnar Gundi, Raven og Meees rokkuðum allt í botn með smá hjálp frá vinum og vandamönnum.

Á föstudaginn var eitt allsherjar partý, singstar-læti og æði, fengum pakka og allt...sungið til klukkan 3 þá var haldið út...nema hvað að konan góða var aðeins drukknari en henni var hollt...og þurfti því að snúa við á miðjum laugarvegi og fékk far heim með góða fólkinu : D við elskurnar horfðum á einn Angel og kaffi og vatni dælt í gömlu drukknu konuna!!!! Þá fengum við tvo gesti sem náðu okkur frammúr rúminu, singstar skellt í gang aftur og ekkert sofið...allavega voooooða lítið.
Laugardagurinn fór því í ÞREYTU dauðans, Ragg syss komin í bæinn og búið að skila henni úr pössun eftir partýkvöldið...torguðum pizzum í kvöldmat og svo var reynt að horfa á tv og dvd en það gekk ekki svo vel hjá kjéllu sem sofnaði á tíu mínútna fresti : s annars var þetta bökunardagur fyrir kökuboð sunnudagsins mmmm
Sunnudagurinn byrjaði á að baka some more....kökur kökur kökur og Raggs gerði heita brauðrétti. Fólk kom borðaði kökur, spilaði buzz og við skelltum pylsum á grillið, rautt vín dregið fram smá leonardo og co. svo var bara meira partý og rugl, guð hlakka til að sjá myndirnar ussussuss meira ruglið...ekkert nema skak við Nasty boy og baby got back, dillibossahump og grump all over. Skelltum okkur á 11una og dönsuðum þar some more víííí trúnó alla leiðina heim upp laugarveginn og helvítið læti í okkur Sirrinu vöktum sofandi fólkið og héldum vöku fyrir því. Meiri helvítis vitleysan.....
En allavega helgin var GÓÓÓÓÐ og takk fyrir mig...úff langt blogg

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Til lukku með aldursbreytinguna elskan ;) Vildi að ég hefði getað verið með og séð konuna upp á sitt besta, með glas í annarri og míkrafón í hinni...var það ekki einhvern veginn svoleiðis? ;) hehehe. Anyways, gott að þú áttir góða helgi skvísa :D

12:36 e.h.  
Blogger gummo said...

Takk elskan, ég var nú ekki lítið grimm í framan þegar Kle sagði mér að fúin yrði í meðferð....hvernig er það ertu skilin við okkur og singstar muhuuuuuuu þú kemur næst ástin. Láttu þér líða vel ; )
(og já hún var í essinu sínu...þar til átti að labba í bæinn!!!!úff aðeins of mörg glös held ég og ekki nóg af lögum....)

2:21 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home