miðvikudagur, apríl 12, 2006

Jæja helgin búin og það barasta komið inní miðja næstu viku...(eða þessa)
Helgin var fín mar, skellti mér á tjúttið og söng í singstar (ógurleg stjarna orðin maður minn!!!) fór svo m.a.s. í bæinn þrátt fyrir 22 leysið muuuhu, fór nú bara rétt niður um helming því ég fór á 11-una. Í röðinni var mér tilkynnt að ég væri í mesta lagi 24 ára....hehehe ekki slæmt það nema hvað að ég varð nú bara hálf móðguð!!! Hví þá spyr maður sig...jú, ég var nefninlega ekki deginum eldri en 17 á videoleigunni um daginn....uss 24 glætan.

Nú er annars svo komið fyrir konunni að hún er sérdeilis alein heima...ALEIN og fyrir þá sem þekkja mig vita þeir hvað það þýðir usssssssssssssussss (tannglamur glingglingglinggling)
VILL EINHVER GISTA?? Gæti þó verið á leið út á lífið í kvöld svo að kannski þarf ég ekki að vera svo lengi ein heima í nótt...

Ástarhnossin mín nær og fjær ég kveð í bili

1 Comments:

Blogger Sirrý Jóns said...

...frétti að þú værir rosa töff um hárið :) Hlakka til að sjá þig í næstu viku, gleðilega páska ástarhnossið mitt og láttu þér líða vel... :*

3:59 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home