
Hér kemur lítil saga af sætum litlum ketti
Dag einn þegar ég var að labba til Gundi kom lítill sætur köttur á eftir mér...mjálmandi og aumur að það ætti að yfirgefa hann...kom við hjá Gundi og við af stað í vinnuna...kisi enn á eftir okkur ógurlega sár að vera skilinn eftir við rauðarárstíg (hann þorði ekki yfir)
Jæja, líður og bíður og ca. 8 og hálfum tíma síðar trítla ég aftur um sömu stræti og kem við hjá Gundi aftur, fæ þar rauðvínsglas. Þegar ég var búin að sitja í ca. hálftíma og nýbúin að fá aftur í glasið...þegar ég heyri þetta ámótlega væl...jú jú er ekki litla skinnið að trítla inn um hliðið hjá Gundi, kominn til að sækja mömmu sína hihihihi. Ég reyndi að loka á hann til að klára glasið en þá vældi hann bara enn hærra og ámótlegar hehe hann var eins og stunginn grís "eeeeekki skiiiiilja mig eftir úúúúti mjáááááá" Það var engan vegin hægt að leiða þetta hjá sér og mín þurfti bara að biðja húseiganda að klára glasið og drífa sig af stað...my god hvað maður fékk sting í hjartað...svo alla leiðina inn götuna labbaði hann stíft upp við mig og stoppaði í hvert skipti sem ég gerði það og þegar ég labbaði nokkur skref til baka leit hann á mig eins og ég hafði gefið hann og sagði mjá voða veikt og aumingjalegt (gat ekki sleppt því að stíða honum pínu hehe). Svo þegar við vorum komin heim lagðist hann bara upp í rúm og svaf á sínu græna viss um það að mamma væri frammi oooooohhhh so cute.
Mér var síðan sagt að einmitt á sama tíma og ég var að labba um hverfið ca.21 hafi hann skotist upp og tekið sprettinn út.............að ná í mömmu sína æ, svooooo fallegt
Æ, Ég á hann svo mikið og hann mig ooooohhhhh verkir í hjarta æææææ


3 Comments:
...en það krútt, skulum vona að framtíðarbörnin þín verði ekki svona háð þér. Viljum nú ekki fá leið á þeim, ó sei sei nei...
Við skulum bíða með öll plön um framtíðarbörn þar til að framtíðarmaðurinn er í höfn...svo vitum við ekkert hvað framtíðin ber í skauti sér...kannski vélmennamann með sjálfvirka sæðisgjöf...hhhmmm alveg eins og venjó kall bara kaldur!!! held ég vilji þennan venjó bara....!!! (held ég ætti að leggja mig?!%#::?????????)
...hafa ekki allir karlmenn sjálfvirka sæðisgjöf? ;) Amk ekki erfitt að koma þeim til...hahahahahaha ó hinir margslungnu kvennaklækir
Skrifa ummæli
<< Home