föstudagur, desember 09, 2005

Nudd vs hnykk

Ég átti góðan dag í gær ; )
Byrjaði á því að Punk vinkona vakti mig og við fengum okkur kaffi mmmmmmmmkaffi.
Svo fór ég í laaaaangþráða klippingu, ég eeeelska að fara í klippingu.
Þaðan fórum við (ég & Punk) í social call í e-ja hönnunarbúð við slippinn þar sem vinkona hennar vinnur.
Svo kom aðalmálið...nuddtíminn eða svo hélt ég!! Nei, nei, þá voru þetta bara hnykkingar og einhvers konar höfuðbeina og spjaldhryggja tími...en þar sem konan er petrified við nokkuð sem heitir að hnykkja einu eða öðru voru fyrstu mínúturnar frekar scary....en þetta gekk svona líka vel og kamelhnúðurinn minn er horfinn, komin með sentimetran aftur sem mig vantaði uppá á annan fótlegginn, hryggjaliðurinn sem ég gat aldrei látið smella er í fínu lagi, ég get rétt betur úr hægri handlegg og bak/mjöð komið í lag smil smil smil : D
Aftur á móti er ég helaum núna hehe but a small price to pay for good health
Lifið heil

3 Comments:

Blogger Sirrý Jóns said...

...Gyða Gyða Gyða var svo sniðugt að losa sig við kamelhnúðinn? Alltaf gott að hafa varabyrgðir af vatni með sér... ;)

1:02 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

þú hljómar svo gömul þegar þú talar svona;)

3:08 e.h.  
Blogger gummo said...

Móa mín, ég er nú einu sinni orðin 27 ára...ekkert unglamb lengur hhhmmm

12:22 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home