sunnudagur, nóvember 20, 2005

Eftirfarandi er illa fengið blogg...en þar sem frænka gamla/litla er svo tilfinningarík og kemur þeim mun betur til skila en sjálf varð ég bara að fá það lánað. Gjörið svo vel nördablogg nr.1 (ath. paste-að með örlitlum breytingum....)

...váááháááá hvað Serenity var góð mynd!!! Við skelltum okkur bara í bíó klukkan 17:45 og það var æði því við vorum ca 12 í salnum. Við stöllur vorum án efa mestu aðdáendurnir á staðnum og hlógum og klöppuðum, stundum, grétum og pískruðum. Spenningurinn áður en myndin byrjaði var þvílíkur að gæsahúð gerði vart við sig og augnkrókarnir vöknuðu aðeins. (...) Alla leiðina heim var ég svo með einhverja undarlega tilfinningu í hjartanu, var svo upprifin yfir myndinni og langaði og hlægja og gráta og tala við alla um hana, greina hana og bera saman við þættina. Bráðum get ég hellt úr skálum aðdáunirnar yfir alla því í kvöld verða held ég flestir sem ég þekki og hafa áhuga á þessari mynd búnir að sjá hana! :)

Aftur til mín.
Jamm, svona var þetta hreint og klárt...hjartað hamaðist svoleiðis fyrir myndina. En aumingja pilturinn sem sat fyrir framan okkur...úbbs, fyrst reyndar bannaði frænka honum að sitja þarna...!! jammsarabamms það gerði hún, en hann sat bara ská fyrir framan hana og sér eflaust eftir því hehehe því pískrandi gelgjunördar sem við vorum hihihahaha muahahaha
Nú svo léttir á meiri nördaeftirvæntingu eftir ca. viku því þá kemur Harry vinur minn Potter í bíó guð hvað ég hlakka til ; )

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home