miðvikudagur, apríl 20, 2005

Það er nú ekki seinna vænna að skrifa svona á síðasta vetrardegi....VEI og eins og allir vita er nú bannað að snjóa, rigna óhemjumikið (nema það sé ógeðslega hlýtt) og vera rok því nú tekur sól og sumarylur við á morgun...hhhmm kannski til of mikils mælst!
En gleðifréttir af heimilinu á Rauðá/Njálu VIÐ HÖFUM FENGIÐ KLÓSETT sannarlega blessun að ofan...!!! Get allavega farið að sofa heima hjá mér og boðið heimilisfólki í Mávahlíð að nota sófann sinn aftur. Oliver er allavega mjög ánægður með fyrirkomulagið og kúrði hjá mömmu sinni langt frameftir, passaði síðan vel uppá hana hvert skref sem hún fór.
Héðan er annars það að frétta að konan á frí á morgun VEEEEEIIII engin skóli bara sof, og um helgina sé ég framá að vera að fara að grunna wc-ið langar nú pínu að jamma...er einhver til ??

Að lokum vil ég kveðja með litlu frumsömdu ljóði
Á botni öldunnar svífur fluga,
hún er ekki ein.

Sjáumst

2 Comments:

Blogger Tumi said...

Gleðilegt sumar Gyða og til lukku með nýja WC-ið;)
Aldrei að vita nema maður skelli sér í bæinn um helgina, alla vega smá kíkk á Ölstofuna, svona til að ath með handbolta kappann ;)

1:03 e.h.  
Blogger Sirrý Jóns said...

...ég er alltaf til í djamm þrátt fyrir endalausa heilsubresti - aumingja gamla konan!!! Gunnar keypti amk bjór áðan svona til öryggis, held að það sé kominn fýlingur í hann enda hefur hann verið rólegur upp á síðkastið (ég smitaði hann af öllum flensunum múhahahahaha)! :D

3:12 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home