mánudagur, janúar 03, 2005

Hey ya! vei vei vei
GLEÐILEGT NÝTT ÁR

Haldið þið að tölvan hafi ekki tekið upp á því að fara að virka svona á nýju ári, eins gott að nýta það eins og hægt er...var á netinu til 3 í nótt tímdi ekki að fara að sofa var svo hrædd um að það hætti að virka. VEI VEI jamms og hvað get ég sagt, jólafríið er búið að vera fínt so far gamlárskvöld var rosa fínt við stóri bror fórum til vinafólks hans í Mosó og vorum þar í góðum en afar undarlegum hópi fólks hehe þar var etið, drukkið, sungið, gantast og almennt haft gaman. Matseðill kvöldsins:
Forréttur-Reyktur og grafin lax með klettasalati, kavíar og agúrku
Aðalréttur-Kalkúnn fylling a la amerikano með creame corn, sósu auk tilheyrandi meðlæti
Eftirréttur-Suðrænir ávextir með granddressingu
Með þessu voru drukkin hvít- og rauðvín sérvalin með það í huga að draga fram sérstætt bragð hvers rétts.
Jamm, þannig var nú það. Mér fannst Skaupið skemmtilegt, það kom vel á óvart : ) til lukku strákar með ykkar framlag. Loks eftir stjörnuljós, söng og dans var haldið heim snakki hent í skálar og þegar fólk fór að streyma að stakk ég af til að hitta stórvinkonu mína miss UK. Með henni voru barir bæjarins þræddir einn af öðrum og endað á Gauknum þar sem stórvinur minn!!! hann Magni spilaði fyrir dansi ásamt félögum sínum í bandinu. Það var síðan ekki haldið heim fyrr en um 7 og konan komin í bælið half 8 aaahhh. Það sem var verra var nú það að við Kiefer fórum e-ð á mis og náðum ekkert að hittast hvað þá að taka nýársdansinn okkar ussss en það var nú bót í máli að hann sendi félaga sinn hann Joshua (betur þekktur sem Pacey úr Dawson) til að halda okkur félagsskap sem hann og gerði blessaður. Hann er gæðablóð hann Josh. Jæja nú er komið e-ð málæði í kelluna og þá segir hún stopp. Tala við ykkur seinna, en munið að þið eruð öll yndisleg. Nú er komið nýtt ár, ár aðgerðanna, ár atitjúdsins.
STRÁKAR OG STELPUR ÞETTA ER ÁRIÐ OKKAR

2 Comments:

Blogger Sirrý Jóns said...

...aaarrrrrrííííííííííbaaaaaa Cuba libra og Mohito, cha cha cha!!! Er ekki suður-Amerískt þema á helginni???

11:13 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

bíddu bíddu á ekkert að fara að blogga orðið frekar slappt!

11:48 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home