þriðjudagur, mars 01, 2005

Komin heim smil smil, frá landinu STÓRA. Jamm þar er allt stórt.....ALLT húsin, kaffibollarnir (minnsti takeaway bollinn hét tall) maturinn, matarskammtarnir, gosglösin, fólkið, hárið, you name it. Anyways, I made it. Engir geðsjúklingar upp á þaki að skjóta okkur á bílastæði, Bin Laden fjarri góðu gamni (held samt að þeir hafi kennt honum um flóðin í Calif.....) cowboyjarnir nokkuð stilltir og okkur ekki rænt hjúkket. Það er bara eitt sem ég skil ekki??? Hvar var Victoria's secret? Við fórum í það sem talað var um að væri stærsta mallið á pleisinu og ekki var hún þar, ég sá ekki einu sinni mp3 spilara þar í öllu þessu malli. Hvað sem Victoriu líður þá var þetta hellings gaman, tvennir country tónleikar og ótrúlega gaman að skoða menninguna og ómenninguna. Verð að kikka þangað aftur, þó ekki væri nema til að finna örugglega Victoriu......hún skuldar mér svo sem brjóstahöld fyrir 10-12 þúsund!!
Síðan þegar ég komst heim vék litla kattarkvölin ekki frá mér í a.m.k. sólarhring á eftir. Krrrrrrrrrrrrrrrrrrúttið. Er nú reyndar ennþá pínu að passa að ég fari ekki neitt.
Well komin heim og miða við framtaksemina að skrifa hér inná strax verður það ekki gert aftur í bráð....eða hvað!!!

Góða nótt elskurnar nær og fjær

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home