mánudagur, nóvember 15, 2004

Jæja, þá er konan komin á kreik aftur en hvursu lengi veit enginn....
....og það sem meira er hún hefur átt nokkurs konar líf síðustu viku eða svo. Sko þetta byrjaði allt þannig að mín fór út eitt föstudagskvöld með Gundi gellu, tónleikar með brúðarbandinu vei vei alltaf góðar, síðan var lífinu tekið með ró laugardaginn og ef mig minnir rétt held ég hreinlega að mín hafi farið í leikfimi svona eftir drykkjuna. En það sem er fréttnæmast er kannski að hún fór AFTUR að djamma kvöldið eftir...ussusssusss og það sem meira er Halloweendjamm! konan sem hefur antipat á innleiddum hefðum frá útlöndum skemmti sér bara svona líka vel SMIL.
Í síðustu viku kom síðan gamall vinur í heimsókn suður og allir hinir gömlu vinirnir hafa verið að snúast með honum, fórum í keilu á föst.kv. það er alltaf gaman að gera sig að fífli í keilunni.
Hvað er annars að frétta úr útlöndunum???

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home