mánudagur, október 04, 2004

Jæja þá er pólitískareiðin runnin af stelpunni (en hún kraumar ennþá undir niðri...arrg) á hinn bóginn hefur kaupæði rennt sér á hana....eins og hún hafi þurft á því að halda!! Jamm, smárinn tekinn með glæsibrag ásamt Gundi í gær og hugurinn leitar til skó- og gallabuxnainnkaupa í þessari viku.....uss og svei hvaða gelgja hefur andsetið hana Gummo þetta árið. Nei, ég meina þetta....maður skellir sér í 26 árin og umbreytist í gelgju??? Hvað er málið? Annars er það líklega skárra heldur en 26 ára kona (jú jú það má víst fara að kalla sig konu uppúr þessu) með hnjáför í íþróttabuxunum og hugsar eins og fertug húsmóðir puh puh puh við segjum hey, nei, skirpum úr okkur tyggjóinu og setjum meira jucy frut gloss á okkur og höldum okkar striki. (hhhmmm er y í skirpa/skyrpa, já svi mér þá er það ekki?) Gelgjur, over 26, sameinist gegn ofríki sultugerðaungmæðranna.........................................
Hmmm já, annars er maður bara hress, fer að fá einkunn og svoleiðis bless bless

2 Comments:

Blogger móa said...

mmm ég elska sultaðar gúrkur..ég held að ég ætli að fara hinn gullnameðalveg í þessum gelgju málum...er farin að ganga í bleiku og mála mig...en er líka ný búin að kaupa mér brauðvél :D

7:24 e.h.  
Blogger gummo said...

já elskurnar gelgjan lifir sé ég, Elfa mín svo ég svari þér, þá já löglega máttu vera gelgja til 25 ára aldurs og við tuttugasta og sjötta aldursárið fer það að versna.
Móa mín til hamingju með að hafað skellt þessu öllu í einn pott, bleikur bolur í brauðvél getur reyndar verið varasamt. En eins og sést þá er auðveldlega hægt að samtvinna líf gelgjunnar og húsmóðurinnar með því að baka brauð í bleikum bol.

4:22 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home