þriðjudagur, janúar 08, 2008

HELT OP AT KØRE!!!

Jæja gott fólk...þessir fáu dagar hafa bara verið hin ágætasta byrjun á árinu...skulum vona að það sé spá um framhaldið ; D
Bara í dag...er ég farin að taka myndir aftur, fann gallabuxur og 80's teygjubelti og svo lág stígvél á 50 dkr. OG Punk og Kle koma í lok feb...HELL YEAH

En ég hef alveg heilan massa að segja...og held ég byrji á því nýjasta og vinni mig aftur á bak...
Ég er sumsé byrjuð í skólanum...sem virkar ekki eins hættulegur og ég hélt. Allir bara frekar vinarlegir og ekkert svona að laumast með veggjum og ekki tala við bekkjarfélagana...þvert á móti allir frekar opnir og spjallnir ; )
ég borga heilar 300 dkr. til skólans og það er fyrir lestrarefni og efniskostnaði. And that's it!!! Peningamálin fara að því leytinu ekki í keng...það er frekar með borga lestarkortið og uppihald sem verður strembið enda frúin að fara að koma sér í gang með að sækja um námslán OJ OJ ojojojojoj ekki sérlega spennt fyrir því...! Jamms, skólinn kemur til með að verða strembinn en pottþétt eitthvað sem ég get alltaf notað hvernig sem fer. Vakna kl.6 á morgnana og heim aftur kl.17 EF AÐ ÉG ER BÚIN SNEMMA sem þýðir á busy dögum verð ég ekkert á heimleið fyrr en að kvöldi til!!
Skólinn liggur í krúttulegum bæ eða borg (Viborg) einn af elstu bæjum danmerkur og á sér langa og mikla sögu. Við fengum smá túr um bæjinn í dag voða gaman og afskaplega fræðandi...

ÉG HLAKKA TIL AÐ SJÁ HVERNIG ÞETTA FER ALLT SAMAN ; D

6 Comments:

Blogger Evert said...

Frábært að heyra að þú sért komin í skólann og sért að fíla hann í tætlur, þá erum við einu skrefi nær fyrirtækinu sem við ætlum að stofna ;)

3:55 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

mikið er frúin sæt:)
knús úr úthverfinu

8:37 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gangi þér vel. í skólanum gott að þetta er allt betra en þú hélst.
Kv. Ragga

11:35 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

@Evertos...thanks babe ; ) tokum skolann a tessu ari og fyrirtækid a tvi næsta...!
@MóaFóa...takki takk, tekid sidasta sumar en held ad fruin se bara ennta svona sæt tihihi ; )
@RaggaSyss...Jahá allt er gott og svo gott, fekk alveg svona gledi i magann ad vera ad taka myndir :D
Knus og kossar

7:02 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

oh ég sakna þín...er búin að setja myndina af þér sem desktop background...töff hár maður, mitt er ekki alveg svona, ég vil þitt hár...love you

Atvinnulausi írinn

9:09 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sakna þín !!

Er að enda siðustu hefðbundu vaktina í St.71!

Vona að allt gangi vel hjá þér í Skólanum, en hafir ekki of mikið að gera svo þú gleymir ekki að blogga :0)
te quiero!

7:12 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home