PAKKAR PAKKAR PAKKAR
Já, pakkar hér og pakkar þar...held ég hafi aldrei sent eins marga pakka í einum mánuði...eða bara yfir heilt ár...það er Island, það er England, það er Írland, það er USA, það er Danmörk, það er Island og svo Island...(málið er að ég gleymdi alltaf einhverju og er því núna búin að senda 3 pakka til Islands...!!!) Nú svo fékk ég pakka FRÁ Islandi í dag VEI VEI VEI mamma ramma að gleðja stelpuna sína Takk TAKK TAKK elsku mamma mín. Þetta hitti alveg í mark haha nema rauði ópalinn (úbbs bannað að vera vanþakklátur), Laufabrauðið alveg í köku sem er bara betra þá verð ég fljótari að gúffa því í mig mmmmmm. Hvað fleira um pakka...hhhmmm já, er á góðri leið með að verða búin að kaupa alla jólapakkagjafir svona yfir höfuð svo mín er í góðum málum!!! Er það ekki!??!!??
En hvað segist svo af fólkinu mínu hér og þar um heiminn....nú vil ég að allir kvitti og segi mér hvað þeir voru að gera fyrr um daginn. Bara svona svo ég fái smá hlýju í kroppinn að vita af ykkur ; ) OG ALLIR SAMAN NÚ.........
En hvað segist svo af fólkinu mínu hér og þar um heiminn....nú vil ég að allir kvitti og segi mér hvað þeir voru að gera fyrr um daginn. Bara svona svo ég fái smá hlýju í kroppinn að vita af ykkur ; ) OG ALLIR SAMAN NÚ.........


10 Comments:
Hæ sæta var að koma úr vinnuni panta sjáðu, nu liggur leið mín á rauðarástíg að finna forláta sko sem senda skal dömunni með jólagjöfunum frá stigahlíðabúum :) kys og kram Kle
Elsku krúttið mitt....takk takk takk fyrir að hringja og takk fyrir fína kortið ...kyssi kyssi kyssi.....forever yours Guðný
Hæ Gyða.
Ég var nú að koma heim úr fiskinum.
Talandi um pakka mömmu og pabba leiðist ekki að fá þessa litlu skemmtilegu pakka frá þér.
Kveðja úr firðinum fagra frá Röggu.
Sæta sæta mín! Kvittast hér með í þessa líka skemmtilegu "gestabók" !!
Kassar á leið til þín, julegaver á leið til þín! Pósthúsið í Skipholtinu er nú ekki eins vinsælt hjá mér í ár eins og það hefur verið skal ég þér segja, en hvað um það þú færð vonandi kassana þína já já.
En eitt í því þeir kostuðu heilum 5 þúsund krónum minna en við gerðum ráð fyrir, hef hitt fyrir einhverjar góðar vogir þarna í Skipholtinu, þannig að sendu mér nú uppló svo ég geti gefið þér pening tilbaka honeypie!
Annars er ég farin að hlakka mikið til að sjá þig ástin mín!!!
Big love
Hæ hó, ég var að klára End of Course prófið mitt og nú er ég að fara kaupa jólagjafirnar á fullu !! ekki seinna vænna því það er brottför eftir 30 tíma... shit.. :s
Já akkúrat, ég er líka svona að þykjast vera pakka, geri það nú samt aldrei fyrr en á síðustu stundu svona en samt búinn að hafa voða athöfn þar sé ég næ í stóru töskuna og opna hana svona út á mitt stofugólfið, þar fær hún svo að fara í taugarnar á mér þar til ég neyðist til að henda öllu draslinu í hrúgu í hana, skella í lás og bruna út á völl !! hehe
Já minn dagur kominn í hnotskurn, nema jú ég er að hugsa um að demba mér í ræktina seinnipartinn svona aðeins til að auka á stressið... :p
...hæhæhæ ég svaf til hádegis, fór í sturtu og gerði mig sætari, drakk te og fór svo í Kringluna með Herdísi að reyna að klára jólagjafirnar. Svo var brunað í Grafarvoginn að ná í kærastann hennar Herdísar og svo til Möddu. Þaðan var haldið á Súfistann að drekka kaffi og vatn, svo Mekong þar sem ég ákvað að ég væri ekki svöng. Þá var farið heim og mundi loksins eftir spilinu þínu! :) Er að tala við mömmu í símann núna, búin að tala við pabba. ALveg nóg að gera sko!! ;) Svo er á planinu að ná í ferðatöskuna þega Klemens kemur heim og reyna að koma essum 17 jólagjöfum fyrir ásamt fötum og þessháttar nauðsynjum. Brottför í fjörðinn á föstudag kl 8...
Hæ Krúsa ég fór á fætur kl 4.30 og brunaði í Keflavík besta systir mín var að fara til D.K, kom svo heim og reyndi að sofa smá, en er eftir að baka allt fyrir jólin fer í það í dag, svo er maður ekki búin að versla eina einustu jólagjöf er að fara í það um helgina með mínu fólki. Svo er náttúrlega verið að býða eftir elsta syninum í heimsókn, svooo alllt verður á síðustu stundu hér.
p.s
Er líka að hjálpa Sæma að keyra út ég sem sagt fer með og er í pappírs vinnunni hjá honum.
Stórt knús til þin skottan mín
Frænka í háfjöllum Reykjavíkur
við bertram fórum á fætur um 10 og brunuðum með bussen í skólann....þaðan fórum við í hádegismat á kaffihús með m.a. ÞÉR!!!!! svo var það smá bæjarrölt....líka með ÞÉR...svo var labbað í bussen...með smá mjólkurstoppi í mölleparken...og 14 tekinn í bilka...keyptum 3 jólagjafir í bilka...svo röltum við heim...þar sem að ég komst að því að bertram var gegnum blautur...þessar sundbleyjur eru ekki góðar!!! heima töluðum við við mömmu í klst á skype..þá komu lára og peter og 40 mín seinna eða kl 19 fór bertram í rúmmið og ég að reyna að pakka og taka til:) fer aftur í bæinn á morgun að reyna að ljúka jólagjöfunum af...kannski við getum hisssstt...elska þig og bið að heilsa xxxxxboy;)
Halló sætasta krúttið :) gaman að sjá myndir af þér, ekki það ég sé búin að gleyma hvernig þú lítur út, hehe. Var í ræktinni í morgun, verulega snemma, og svo beint í Stigahlíðina í jólaundirbúninginn fyrir mánudaginn.) Annars allt við það sama, smá jólafílingur OG ekki verra að fá þykkt og gott kort frá henni Gyðu minni.
Love u, Agnes
VÁ !
En æði! Hvað kom til að allir fóru bara að gefa skýrslu um daginn sinn! Þetta er frábært :)
Keep up the good work guys!
Skrifa ummæli
<< Home