sunnudagur, desember 03, 2006

NÚ ER ÞAÐ SVART KRAKKAR!!!!

Hey hey og hó hó...
ég er svo glöð því í dag komst ég að því að ég fæ að fara á julefrokost í vinnunni. Átti að vera að vinna en yfirkonan sagði það nú ekki ganga og ætlar að redda því : D so big grin fyrir það. Vei Vei...þá get ég líka blikkað sætu sætu...það verður einhvern vegin alltaf aðeins auðveldar undir áhrifum juleøls og ákavítis.

En shit pitt fyrst við erum á the boy subject...muniði eftir Ghana-búanum góða þarna frá því um daginn...sko, já bara svona eins og gengur og gerist kippir maður sér ekki upp við svona bónorð í vinnunni og tekur bara þátt í gríninu...eða hvað!!! Nú kemur gaurinn í dag, var í mestu makindum að spise middag alsaklaus og grandalaus...nei nei, hann var nú bara að meina eitthvað með þessu...vegna þess að hann er búin að vera að fylgjast með mér í vinnunni og finnst ég fínt efni í kærustu!!!!! HALLÓ!!! Hann tók engum sönsum alveg sama hvað ég sagði (ekki einu sinni að mamma yrði BANANAS ef ég kæmi með útlenskumælandi gaur heim..."hva' ræður mamma þín hver er kærastinn þinn?"...) Svo kom setningin, og þá leið mér eins og ég væri stödd í breskum gamanþætti, "is it because I'm black??" Guð og allt það þarna uppi!!!!!! Svo á endanum þurfti ég að ljúga því að ég hefði verið að koma úr frekar erfiðu sambandi á Íslandi og að ég vildi bara vera ein, finna sjálfa mig og fatta hvað ég vil í lífinu...how lame er það. KRAKKAR, hann hætti ekki þar. Svo á endanum varð ég að segjast kannski koma með honum út þó það væri ekki nema bíó SEM VINIR þó það væri ekki nema til að kynnast honum og sjá að hann væri ekki "vondur gaur"!!! Hvaða helvítis vitleysa er þetta?????????

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

æj gyðulingur:*:*

4:24 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ha ha ha....vertu ákveðin frá byrjun....óþolandi svona gaurar sem kunna ekki að taka nei-i...segðu bara nei og hvesstu þig ef þörf krefur...ekki láta hann komast upp með eitthvað bíóvinastandsrugl, það er bara fyrirsláttur og þú mátt ekki láta undan neinu.....ekki einu sinni einni bíóferð...trúðu mér, hann verður ágengari eftir það(hef mikla reynslu í þessum málum...)no means no!

7:31 e.h.  
Blogger gummo said...

Vá...takk fyrir þetta...má ég spyrja hver þessi frækna kona með reynslu er?

1:06 f.h.  
Blogger Guundi said...

he he he....auðvitað er ég konan með reynsluna...láttu mig þekkja þessa fýra.....mundu bara að þú skuldar þessum manni ekki neitt (hann á hinsvegar eftir að láta eins og þú sért skuldbundin honum).....stuð og baráttukveðjur frá Landi Íra í vestri

3:30 e.h.  
Blogger gummo said...

@GS...já, lífið er erfitt...hér í landi lifrarkæfu og bauna!!!
@KonanMeðReynsluna...grunaði það, já það er alveg satt ég skulda honum ekkert ; D takki takk.

8:02 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home