miðvikudagur, október 18, 2006

Hæ og hó
Ég er í pínu vandamálum...ekki alvarlegum en!! Sko ég er búin að senda út svo mikið af umsóknum um vinnu og fæ nú stundum svör til baka bæði um að umsókn hafi borist eða því miður hefur staðan verið boðin öðrum....ok, þá kemur "vandamálið" ef vandamál mætti kalla. Ég MAN EKKI hvaða störf þetta eru sem ég hef verið að sækja um....og held m.a.s. að ég hafi á tímabili sótt um vinnu í vitlausum bæ!!!!??

Svo fékk ég pínu panik í gær, fór að skoða herbergi sem var bara fínt og allt það, voða krúttulegur eldri herramaður að fara leigja út (2)herbergi í kjallaranum með fínni aðstöðu, og hér kemur "panikið" alla leiðina til hans hugsaði ég "...en ég er að fara að skoða annað herbergi á fimmtudaginn og hvað ef þetta herbergi (gamla mannsins) er bara rosa fínt og ég þarf að svara honum fyrir fimmtudaginn og svo kannski segi ég nei við hann og hitt herbergið er ekkert fínt....." Jamm, oft og oft og oft miklar konan hlutina fyrir sér...en þetta reddaðist svona líka fínt, ég bara sagði honum að ég væri að fara að skoða annað herbergi og þá frestaði hann bara svartímanum mínum um nokkra tíma, sæti kall sem sagði líka að ég talaði ÓGGISLEA góða dönsku liggaligga-lái

Maður verður bara feimin...

11 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það er ekki verra að fá hrós frá dönum fyrir hreiminn. Þú ert gasalega klár elskan ;)

10:10 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

jæja, það er bara allt að gerast, keep it up ;)

7:06 e.h.  
Blogger gummo said...

@Jónaskvís...takk babe og auðvitað er maður gjéggjað klár, hvar lærir maður betri dönsku en á Ísalandinu...NOT!!!!
@Þóra babe...allt að gerast, þú mannst planið, ikke? Húsnæði 1st, vinnan vikuna eftir og svoooo....!!!
Ást til ykkar beggja ; )

7:55 e.h.  
Blogger Guundi said...

Mín kærasta....alltaf gott að sækja um vinnur í öðrum bæjum...verður Óliver ekki brjálaður ef hann fréttir af Peido? Mamma bara komin með nýjan ha....

10:02 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þarna sérðu, þetta reddast allt saman:)

10:45 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ég sakna ykkar....er að verða geðveik úr stressi....hef ekki hitt neina og tíminn hleypur frá mér....veit ekki hvort og hvenær ég hef tíma fyrir stefnumót:( sniff sniff...er að læra og deyja úr þreytu...missssssss yyaaaaa

11:05 e.h.  
Blogger gummo said...

@Guundiminn...Ég skal segja þér svolítið um hann Oliver minn...hann er svo skilningsríkur að...!!! Æ Vá hann myndi rífa Peido í sig...eða nei láta Keyser gera það því hann er sjálfur svo mikill væskill hehe
@Auður...Jebb, þetta hlítur allt að koma á endanum ; ) hey ert þú ekkert að blogga kona?
@MóMó-mín...þín er sko saknað héðan af þessu landi líka að ég tala nú ekki um hina tvo búendur hússins...Peido finnst ég ekkert nógu margar!!! Prrr mjá. Láttu stressið ekki fara með þig, smjáumst.

5:52 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hehe, fyndin saga og einhvernvegin alveg ekta þú að vera hugsa alltof mikið um eitthvað sem kemur svo í ljós að skiptir í raun engu stórmáli....
En já, frábært að þú hafir fengið hrós fyrir dönskuna, ég er alveg viss um að þar eigi Kim Larsen lögin okkar stóran hlut í velgengninni c",)
Ótrúlegt hvað þetta kattastand virðist ætla aö fylgja þér...
Var að kíkja á flug til DK héðan og það eru bara nokkuð góð verð í gangi get ég sagt þér svo það er aldrei að vita nema mar birtist þarna bara einhverja helgina...

1:45 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hehe, fyndin saga og einhvernvegin alveg ekta þú að vera hugsa alltof mikið um eitthvað sem kemur svo í ljós að skiptir í raun engu stórmáli....
En já, frábært að þú hafir fengið hrós fyrir dönskuna, ég er alveg viss um að þar eigi Kim Larsen lögin okkar stóran hlut í velgengninni c",)
Ótrúlegt hvað þetta kattastand virðist ætla aö fylgja þér...
Var að kíkja á flug til DK héðan og það eru bara nokkuð góð verð í gangi get ég sagt þér svo það er aldrei að vita nema mar birtist þarna bara einhverja helgina...
Farðu nú vel með þíg :*

1:46 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hmm, einhvernvegin tókst mér að skella inn sömu skilaboðunum tvisvar... ojæja... bless í bili..
Evert

1:47 e.h.  
Blogger gummo said...

Allt í lagi elskan mín, þau voru svo fín...allavega von um heimsókn er alltaf upplífgandi og láta minna mann á Kim Larsen ; )
Big loves to America...lalalalalala 'merica I wanna be in A-Merica....

10:39 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home