2 vikur liðnar frá lendingu í Denemarkinu...
STAÐA:
-Eitt stykki íbúð/værelse...ekki fundin/ið
-Eitt stykki vinna fultid/deltid...ekki fundin
-Eitt stykki geðsýki...fer vaxandi
-...samviskubitið líka...
-Þrjú stykki yndisfólk sem leyfir mér að gista og vera fyrir...leyna því allavega vel ef ég fer í pirrurnar á þeim ; )
-Eitt stykki systir í danó...sem hringir og spyr hvernig gengur
-Tvö stykki kettir á Íslandi...sem er sárt saknað : (
-Eitt stykki yfirdráttarheimild...sem gæti þurft að hækka
-Ein skrítin kona (sem ég bý hjá)...sem er alltaf að tala um fínan danskan kærasta, sem á jarðaber í garðinum, handa konunni.....!!!!! Eigum við að byrja á íbúð mín kæra??!!
-Margir margir vinir víðsvegar um heiminn...SEM ÉG VIL FÁ TIL MÍN NÚÚÚÚÚÚÚNA : (
Wish me luck
STAÐA:
-Eitt stykki íbúð/værelse...ekki fundin/ið
-Eitt stykki vinna fultid/deltid...ekki fundin
-Eitt stykki geðsýki...fer vaxandi
-...samviskubitið líka...
-Þrjú stykki yndisfólk sem leyfir mér að gista og vera fyrir...leyna því allavega vel ef ég fer í pirrurnar á þeim ; )
-Eitt stykki systir í danó...sem hringir og spyr hvernig gengur
-Tvö stykki kettir á Íslandi...sem er sárt saknað : (
-Eitt stykki yfirdráttarheimild...sem gæti þurft að hækka
-Ein skrítin kona (sem ég bý hjá)...sem er alltaf að tala um fínan danskan kærasta, sem á jarðaber í garðinum, handa konunni.....!!!!! Eigum við að byrja á íbúð mín kæra??!!
-Margir margir vinir víðsvegar um heiminn...SEM ÉG VIL FÁ TIL MÍN NÚÚÚÚÚÚÚNA : (
Wish me luck


10 Comments:
Oh dont worry babycakes!
Þetta fer allt einhvern veginn. Maður er heldur ekki almennilega að lifa lífinu fyrr en maður er kominn með svimandi háan yfirdrátt og búin að þurrmjólka gestrisni félaga sinna.
Þetta reddast.
ég myndi ath þennan með jarðarberin, kannski á hann íbúð!
Sammála síðasta ræðumanni, um að gera að tékka á jarðarberjamanninum ;) Nú, ef ég finn svo íbúð í rassvasanum mínum þá skal ég gefa þér hana...ekki málið :) Það mun allt ganga vel fyrir rest, you'll see ;)
harpa!!! hann á ekki bara íbúð...hann á HÚS!!!!!!!! góður gripur þarna;)
ahh hvað ég skil þig bestasta kelling..en, eins og Stella í orlofi sagði hér í denn tid: vandamálin eru til að takast á við þau....farðu vel með þig og kauptu rjóma til að hafa með jarðaberjunum...kv. guðný
Namm namm, jarðaber og rjómi... nú þarf ekkert nema sykursætt með þeim til að fullkomna diskinn... persónulega myndi ég nú bara nota sykur en ég held að þú gætir jafnvel notað eiganda jarðaberjagarðsins :p
hmm, þetta hljómaði nú samt hálf asnalega eitthvað..
Gyða í Köben hljómar sko alls ekki illa en alveg spurnig hvort það sé tilviljun... þar sem ég veit um annan kunningja okkar sem er einnig að fara flytja til Köben.... hmmm einmitt pínu kattarkarl sem hefur gaman af því að safna skeggi.... ;)
Svo ég hermi nú eftir síðasta ræðumanni og vitni í íslenskar bíómyndir... "Í Kaupmannahöfn eru þau sund er áður virtust lokuð, opin öllum þeim sem leita og þeir munu loksins sjá uppskeru erfiðisins"...
Okok, þetta var ekki í neinni mynd en mér datt bara ekkert í hug úr íslenskri bíómynd sem myndi segja þér að skella þér bara til Köben... auk þess gæti þetta alveg verið í einhverri mynd þó svo að ég sé ekki búin að sjá hana....
Engar áhyggjur. Held sama stíl og hinir. Hakuna Matata... it means no worries for the res.. :)
Gyða mín! I love you!
Þetta jarðaberjamál er nú bara komið úr böndunum!!!
Og ég var ekki svo blue...bara að tilkynna stöðuna!!!
@Harpa...yfirdráttur er hið nýja fótanuddtæki íslendinga...þægilegt og geymir það í góðri geymslu!
@JónaSkvís...takkitakk
@MóMó...en ekki á réttum stað!
@GundiMín..."ekki svo mikil vandræði, ég keypti hinsegins..." og ekki svo mikil vandræði heldur panic hjá konu sem er ekki vön að vera atvinnulaus!
@EvertíusMinn...Total tilviljun kallinn minn total tilviljun...gæti þess vegna stoppað í Odense á leiðinni niður og ath. málin þar...eða Nyhavn. Auk þess hef ég aldrei fílað skegg...hvað þá kattarkalla!
@Kata...mange tak, will do!
@HMEmíns..."...Love you so much that I could even say that I LUUUUrv U"
Hallú elskubestasta mín bara lent í jarðaberjaævintýrum strax ekki að spurja að því ;)Ef þú finnur einhvern handa mér sem ræktar rauðvin þá kem ég með da samme en hann verður að eiga húskofa íbuð sleppur ;)díll hehe;) knús og knúsaknús luv kle
Elsku Kle minn...hér vaxa rauðvínsbændur á trjánum, með flöskurnar í fanginu...!!
Hvernig er það keyptirðu flugfar á tilboðinu hjá express um daginn????? Ég kem skokkandi til Köben ef þú kaupir flug ; )
knús og koss
Skrifa ummæli
<< Home