mánudagur, október 30, 2006

FÓR Í IKEA Í DAG...innkaupalistinn hljóðaði svona:

-1 stykki rúm...skellti mér m.a.s. á 140 cm svo nú get ég boðið fólki í heimsókn. HVER VILL KÚRA MEÐ KONUNNI?
Það heitir Aneboda sem minnir mig svo á lagið (hun hedder anna, anna hedder hun og hun kan banna banna dig so hurt...!!!) Svo nú á ég rúm sem á heilt lag útaf fyrir sig ; )
-1 stykki náttbroð...af ódýrustu sort. Mun artífartíast aðeins með það þannig fer ekkert að spandera miklu ef ské kynni að artið mistækist
-1 stykki lampi...já, hér með er jég orðin lampa-kertakona þar sem engin eru loftljósin í værelsinu mínu...hhhmmm rómó ikke? Þá segi ég bara HVER VILL KÚRA MEÐ KONUNNI?
-1 stykki fataslá...sú sem ég vildi var ekki til URG svo ég keypti svona eins og Þá sem var að liðast í sundur!!! Vonumst til að konan höndli skrúfujarnið betur en ikeafólkið..! (hefðuð bara átt að sjá mig í kvöld að skella rúminu upp...eins og hafi aldrei gert annað...)
-Svo var auðvitað eitt og annað smádót sem sullaðist með...pottur, panna og eldunaráhöld (gæti jafnvel eldað handa gestunum sem gista í fína rúminu), lak (á rúmið fína) og margt fleira skemmtó...
En vitið þið hvað var það BESTA...?!? draumastykkið mitt í meira en ár....þessi yndisbolli hér. Mikið held ég að kaffið mitt verði gott í honum...nú hef ég allt sem ég þarf...rúm, ljós, spike og KAFFIBOLLANN minn. Hvað getur ein pige óskað sér meira???????

9 Comments:

Blogger hme said...

Ein pige getur óskað sér aðra pige TIL AÐ KÚRA !! ÉG ÉG ÉG skal kúra hjá þér!!!! Er SVO komin til þín í huganum og byrjuð að kúra!! Sérstaklega þar sem engin eru loftljósin. Vá.
Verst að ég hef bara engan tíma til að koma til þín strax. For helvede vinnan! xxx

9:59 f.h.  
Blogger hme said...

Hva hva! commentið mitt vill ekki sjást á síðunni þinni.. þetta er eitthvað dularfullt...xxxx

11:17 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

en kopp kaffe tack ;)

2:44 e.h.  
Blogger helga said...

Oh, það er svo gaman að kaupa nýja hluti í nýja herbergið sitt :) Til hamingju með þetta allt saman! ps. Ef þig langar að læra að fitja upp á þá veistu hvar þú nærð í mig ;) það er nefnilega eitt af því fáa sem ég kann að gera í sambandi við prjónaskap...

5:16 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

gott að heyra að þú ert að koma þér svona líka vel fyrir :O)

10:21 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Halló elskan ég mæti pottþétt á svæðið einhvern daginn vonandi sem fyrst knús frá Kle

1:10 e.h.  
Blogger gummo said...

@hme...bara hætta að vinna og koma...ekki þarf maður að vinna hér virðist allavega!!! hhhmmm Knúsi knúsi knúsi knúuú´´uuú´´uuús, þetta hlítur að duga þar til við hittumst...ikke?
@Hmeið-mitt...jú, jú það er hér!
@Evertos...þetta verður enginn starbucks góurinn, bara hjemmelaved Gyðjukaffi ; )
@Hjélga-fína...Hurru, skal segja þér að það eru a.m.k. 3 búnir að reyna að kenna mér...but no go...
@MyFitnessBabe...ó, já, það er sko verið að koma sér VEL fyrir ; D
@KlemensiðMITTeina...hlakki-hlakki- hlakki-hlakk...get ikke beðið KNÚÚS

3:40 e.h.  
Blogger Guundi said...

Ég heimta að prófa bollann þegar ég kem...ekkert ikea á írlandi, því er nú ver og miður..bara eitthvað Dunnes Stores (hagkaup) og Penneys.....sem er EKKI jafn töff og sænska keðjan

6:53 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Jiiiii ég á svona kaffibolla, sjaldan hefi ég drukkið jafnyndislegan og svei mér þá, ef ekki smá göróttan drykk og úr téðum bolla...ó þvílík sæla og gleði!

11:38 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home