sunnudagur, febrúar 26, 2006

Langaði að deila því með ykkur hvað ég hef átt 2 yndislega síðustu sunnudaga...

Þann 19. ennþá í gleðivímu eftir sigur Silvíu/Sylvíu reif ég mig upp, hentist í sturtu og hljóp af stað á te og kaffi laugarveg (besti cappucino í heimi mmmm) þar sem ég hitti gamlar skólasystur...jamm það var voða fínt og við bulluðum heilmikið milli þess að ræða háalvarleg málefni líðandi stundar!!! Eða something like that.

Nú í dag voru allir á heimilinu, + aukagestur, vaknaðir kl.10 svo við skelltum okkur öll á Kaffi Roma (ekki eins góður cappucino desværre) í morgunmat. Þvínæst hljóp annar helmingurinn heim að byrja að baka og hinn út í búð að klára að versla því það var verið að undirbúa svo mikið sem BOLLUKAFFI mmmm. Kl. svona að ganga 15 var svo vinum og vandamönnum héðan og þaðan smalað saman úr ólíklegustu áttum allir slövruðu í sig kökum og bollum, kaffi og sódavatni...þetta var hið skemmtilegasta kaffiboð. Svona á fólk að gera oftar, kaffiboð og matarboð....hver bíður hæst?? Hvert er maður boðinn???
Megið þið njóta sem flestra fallegra sunnudagseftirmiðdaga svo lengi sem þið lifið : D

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hei hei!!! ég kem í heimsókn til þín ha í apríl ha og þá vil ég fá köku!!! :D:D ha??

1:52 e.h.  
Blogger Sirrý Jóns said...

...þetta var sko bollukaffi ala Hrefna ekki ala Gyða svo það var fullt af undarlegu fólki þarna! ;) En gott var það *slurp*...

8:12 e.h.  
Blogger gummo said...

Hehehe já já
@Gullpull...ef þú verður stillt þá máttu koma í kaffi ; )
@J.B...bara láta vita þá er alltaf til búið kaffi á könnunni og já ég var í arbædinu allavega á mán og þrið og takk fyrir síðast líka
@Sirrý...takk fyrir að svara fyrir mig og hvað er þetta ættingjar og vinir Hrefnu eru nú ekki svo skrítnir!!!
Knús á línuna

3:37 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ég er ALLTAF stillt :D:D

7:01 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home