mánudagur, febrúar 13, 2006

Woyzeck
Krakkar...við erum að tala um að þetta er stykki sem þörf er á að sjá : D ó já.
Við fórum 3 vinkonur í gær og gæsahúðin lét ekki standa á sér...annars er ég orðin ansi slæm með það að tala alltaf við sjálfa mig en það er bara vegna þess að ég á í mikilli baráttu við að garga ekki upp á svið til að skamma eða hvetja karakterana!!!
Mikið finnst mér annars Hr.Sigurðson og Hr. Thors obboslega góðir og að ekki sé nefnt myndó mmmm. Ég segi: þeir sem ekki hafa gaman af leikhúsi og þá kannski ívið óvenjulegu leikhúsi drífið ykkur af stað og þið sem ekki hafið gaman af óvenjulegu leikhúsi farið samt, það er allavega fólk að STRIPPLAST Á BRÓKINNI í þessu verki e-ð sem allir hafa gaman af að sjá hehe ekki satt.
Svo var það Walk the Line...jamm jamm jamm drífa sig, kántímúsíkin fær mann bara til að dillast ekki gubba og leikurinn er ÓTRÚLEGUR þau eru svooooooo flott. Reese Witherspoon og minn maður Joaquin Phoenix þið eruð FLOTT.
Kys og kram to everyone vííííííííííí

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home