fimmtudagur, september 29, 2005

Jæja, þá er mar bara komin heim frá Danó og búin að láta krukka í augun...
Danó er bara cool, fann alveg að þessi staður (eða land) á við mig nú er bara að rífa sig upp á rassinum og flytte sig til útlandet. Svo fór ég audda til doksa í gær og lét lazera mig, þetta er helvíti cool. Maður fær bara valíum, verður svolítið léttur og nettur svo er manni komið vel fyrir í útafliggjandi stól með púða undir höfði og hnjám, voða kósý. Svo bara eru augun glennt upp, skorinn flipi og lazer skotið í augað/un. Svo sér maður bara helvíti fínt og getur bara lesið allt sem maður sá ekki áður og ég veit ekki hvað og hvað : D en auðvitað þarf maður að hvíla augun í ca. sólarhring og það er öööömurlegt, hvernig lifa blindir af!!! Ég endaði á að liggja upp í sófa með spacegleraugun og hlusta á commentary á Buffy the vampire slayer og Rowan Atkinson live on stage til að fara ekki yfir um. Það var t.d. algjör pína að mega ekki horfa á Top model...!! þurfti hvort eð er að taka það upp fyrir roomie og gat horft á það í dag : ) Fór síðan til doksa í morgun og var þar tilkynnt að ég er með 150% sjón...jamms góðir gestir 150% takk fyrir, til gamans má geta að það þarf aðeins 50% sjón til að keyra bíl...!!! hhhmmm djöfull verð ég góður bílstjóri núna!!
But nú skal hvíla augun pínu meira og hella nokkrum dropum í þau, sé ykkur seinna hohoho

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

til hamingju með augun sæta:) hlakka til að sjá þig aftur

8:46 e.h.  
Blogger harpa said...

..öfund öfund ... *dæs*

8:37 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home