laugardagur, september 10, 2005

Ég vaknaði upp við undarlegt kjass í nótt...um ca. fimm leytið var maður eða kona að labba heim að djamminu og rekst á kött fyrir utan gluggann hjá mér (þó líklega ekki Oliver því hann er fælnasti köttur í heimi þegar ókunnugir eru annars vegar auk þess sem hann getur ekki haldið kjafti í svona langan tíma) viðkomandi skellir sér í hörku samræður við köttinn þó aðeins one way conversation, og þarna situr/stendur/liggur manneskjan og mjálmar þessi líka reiðinnar býsn í a.m.k. 10 mín. Þetta var ekkert undarlega mikið mjálm, nei nei...! ég hefði nú kannski skilið viðkomandi ef að blessaður kötturinn hefði nú svarað til baka en svo var það sannarlega ekki. Ég var á tímabili að velta því fyrir mér hvort kötturinn væri farinn en djammarinn svona drukkinn að hann tæki ekki eftir því??
Jæja, verð að gera e-ð........er að fara í AFRÓ veiveiveivei

Síðbúnar fallegar ammliskveðjur til bestustu í Danó, fyrst að ég hringdi ekkert - knús og kossar

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home