fimmtudagur, júlí 05, 2007

Grasekkja

Jamms, hér situr mín og er barasta grasekkja á alla kanta...!
Le Chef skellti sér til Fåborgar að redda vini sínum og verður að vinna þar fram á sunnudag. Nú og svo var Móu og co. boðið í bryllup til Noregs þessa helgi svo ég get ekki einu sinni leitað félagsskapar þar (er ekki að reyna að vera með guilt-trip hér sko ; ). Emma er í Sverige og rest farin til Íslands eða að vinna iss piss úff og púff En hér er ávallt einn sem maður getur reitt sig á...minn fallegi gráhærði, ferfætti vinur Peido :D hann hlýjar þegar kalt er og kætir þegar munnvikin vísa niður takki-takk kæri Peido

En ætti ég að taka yfirlit oder was!! nennum við því? hhhmmm oggu stutt....
-búin að vera í leti-sjúkrafrii í 3 mánuði...OJ
-byrjaði aftur að vinna 2.júlí....oj oj
-HME kom í heimsókn og var yndisleg, stoppaði ca.viku og var illa misnotkuð til hinna ýmsu verka...m.a. hjálpa við að stækka myndir, sækja vatn, hengja upp myndir, baka eina græna og þess háttar ; ) TUSIND TAK ÁSTIN MÍN
-nú svo var farið í sumó...hhhmmm varð smá barnfóstra þar!!! Stjúpsystir Chef var það ásamt unnusta og barni...sem ákvað (þ.e. drengurinn) að nýja konan væri meðtekin í fjölskylduna. Það þýddi líka að spila á hverjum degi (eftir hans reglum hehe), vera heima með honum þegar aðrir stungu af...gefa honum morgunmat hvern morgun þegar móðirin svaf út!! hhhmmm ok, það var allt í lagi en hefði alveg viljað eyða meira en einum degi ein með kokksa....því daginn eftir að systan fór komu faðir og bróðir!!! Men allt í kei...maðurinn er komin í 2ja mánaða frí svo hann er here for mig þegar minns kemur heim úr vinnu eða nú er ekki að vinna...endar með að hann fær nóg :s
-já er sumsé búin að hitta nærri alla familiuna...undanskilin stjúpan sem ég hitti seinna í júlí þegar næsta sumarhúsaferð verður farin!!!
-svo er bara planið að fara að troða minni familíu upp á hann MUAHAHAHAHA...elsta syss kemur í lok ágúst og þá á að fara (ef allt gengur upp) með hann til næst elstu syss og mágs, það gengur ekkert að hafa þetta oneway bara....svo er enski brósi að fara að gifta sig í sept svo þá fær hann STÓRAN skammt af fjölskyldu ef hann kemst með hehehehehe

Jæja er búin að blaðra nóg og of mikið...hafið það gott maurarnir mínir, knúsiknús

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Uss, vona að grasekkjan hafi ekki drukknað í rauðvínspolli :p
Hey, september er bara rétt handan við hornið ;)

7:06 e.h.  
Blogger hme said...

Grasekkja já...
Njóttu þess að vera ein heima, þá getur þú hagrætt dótinu þínu án þess að einhver sé að fylgjast með ;p lovjú x
ps hvað er að gerast í september?

12:42 e.h.  
Blogger hme said...

pps...
ok las greinilega bloggið þitt fyrst og svo everts... þú mátt bara eyða þessari spurningu í fyrra commenti ;)

12:46 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home