miðvikudagur, júlí 14, 2004

Vá mér hefur tekist, á þessum undra-fína sólríka degi (sem átti að notast í að læra....), að opna bloggsíðu; breyta einhverju dóti á því; búa til Linka til hliðar og e-ð fleira sem ég skildi ekki! : ) ég er voða glöð með stelpuna að hafa reddað þessu sjálf. Og svo allir saman HÚRRA fyrir Gummo!!!

Þar sem að það á að fara heim í fjörðinn fagra á morgun var farið í dag að versla ól á soninn, NB. fjórðu ólina...jamm, litli vargurinn er óla-týnir. Enda er hann farinn að vargast hingað og þangað um hverfið, að gera guð má vita hvað. Þannig að nú liggur hann í sófanum með nýju fínu flóaólina sína. Ég er annars að hugsa um að skíra hann upp á nýtt. And Hugh Hefner shall be his name, and Hugh Hefner shall he be called...við erum nefninlega að tala um að þetta er skærrauð flauels ól - ó,já.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home